Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 28. nóvember 2025í máli nr. 31/2025:Icepharma hf.gegnFjársýslu ríkisins,Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins ogÖryggismiðstöð Íslands hf. LykilorðÁkvörðun um val tilboðs afturkölluð. Lögvarðir hagsmunir. Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt. ÚtdrátturKærunefnd útboðsmála ákvað að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 4. júlí 2025 kærði Icepharma hf. þá ákvörðun Fjársýslu ríkisins (hér eftir „varnaraðili“) f.h. Heilsugæslu höfuðborg…
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 28. nóvember 2025í máli nr. 53/2025:Gagnaeyðing ehf.gegnFjársýslu ríkisins ÚtdrátturKærunefnd útboðsmála hafnaði stöðvunarkröfu kæranda þar sem skilyrði 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup voru ekki talin uppfyllt. Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 22. október 2025 kærði Gagnaeyðing ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Fjársýslu ríkisins (hér eftir „varnaraðili“) nr. 22203 auðkennt „FA Waste Service“. Kærandi krefst þess að innkaupaferli varnaraðila verði fellt úr gildi og lagt verði fyrir varnaraðila að auglýsa útboðið á nýjan leik m…
Ný samstarfsverkefni á sviði þróunarsamvinnu í Úganda eiga að leiða til betri námsárangurs skólabarna annars vegar og lagalegri valdeflingu kvenna hins vegar. Um er að ræða samstarfssamninga sem sendiráð Íslands í Kampala hefur gert m.a. við alþjóðlegu félagasamtökin VVOB um verkefni sem eykur grunnhæfni grunnskólanemenda í héruðum við Kyogavatn. Þá mun Ísland á nýju ári hefja stuðning við félagasamtökin FIDA Uganda um lagalega valdeflingu kvenna í fiskisamfélögum við Viktoríuvatn. Enn fremur verður stuðningur við samtökin Ipas aukinn en þau vinna að bættri umönnun og þjónustu við konur í kjöl…
Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til reglulegs fundar á Bessastöðum í dag, þriðjudaginn 30. desember, kl. 15.
Í dag skrifuðu félags- og húsnæðismálaráðherra og heilbrigðisráðherra undir samstarfssamning við landssamtökin Geðhjálp um stofnun skjólshúss fyrir fólk í tilfinningalegri krísu vegna andlegra áskorana. Um er að ræða tilraunaverkefni til þriggja ára þar sem ráðuneytin tvö leggja til samtals 122 m.kr. á móti 150-180 m.kr. framlagi Geðhjálpar. Stefnt er að því að opna skjólshúsið á fyrri hluta næsta árs (2026). Svava Arnardóttir, formaður Geðhjálpar: „Við hjá Geðhjálp erum í skýjunum með að þessi draumur okkar margra sé loksins að verða að veruleika. Við erum afar þakklát stjórnvöldum að hafa l…
Heimildir samkvæmt lögum um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga til að taka ákvarðanir um uppbyggingu varnargarða og aðrar sambærilegar framkvæmdir í þágu almannavarna renna sitt skeið í lok árs 2025. Lögin voru sett haustið 2023 við mjög sérstakar aðstæður þegar mikil óvissa ríkti um þróun jarðhræringa á Reykjanesskaga. Þau veittu stjórnvöldum tímabundnar og víðtækar heimildir til að grípa hratt til nauðsynlegra aðgerða í þágu almannavarna, meðal annars með undanþágum frá hefðbundinni málsmeðferð. Frá því eldsumbrot hófust á Reykjanesskaga og frá því lögin voru sett fyrir tveimur árum…
Um áramót taka gildi ýmsar skattabreytingar sem snerta bæði heimili og fyrirtæki í landinu. Tekið verður upp kílómetragjald á öll ökutæki, samhliða því að olíu- og bensíngjöld verða felld niður. Þá verða gerðar ýmsar verðlagsuppfærslur á gjöldum auk þess sem vörugjöld af ökutækjum breytast talsvert. Hér er fjallað um helstu efnisatriði breytinganna en nánari upplýsingar um einstakar breytingar má finna í greinargerðum viðkomandi lagafrumvarpa á vef Alþingis. Samkvæmt lögum um tekjuskatt hækka persónuafsláttur og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga í upphafi hvers árs sem nemur hækkun á vísitöl…
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi sem felur í sér ýmsar breytingar á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. Frumvarpinu er ætlað að styrkja umgjörð ofanflóðavarna og skerpa á því markmiði laganna að aftra manntjóni og slysum af völdum ofanflóða, einkum á heimilum og mennta- og heilbrigðisstofnunum. Á meðal helstu breytinga sem frumvarpsdrögin fela í sér er aukin kostnaðarhlutdeild ríkisins í viðhaldi varnarmannvirkja, takmarkanir á skipulagi óbyggðra svæða, nema tryggt sé að áhætta fólks með tilliti til ofanflóða verði á…
Hinn 24. október 2025 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingablaði tvö embætti dómara við Landsrétt laus til umsóknar. Annars vegar er um að ræða skipun í embætti dómara við Landsrétt og hins vegar setningu til og með 28. febrúar 2029. Sjö umsóknir bárust um embættin. Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni til dómsmálaráðherra. Það er mat nefndarinnar að Ingibjörg Þorsteinsdóttir sé fremst umsækjenda og því næst Eiríkur Elís Þorláksson til að hljóta skipun og setningu í embætti dómara við Landsrétt. Dómnefndina skipuðu: Ása Ólafsdóttir formaður, Helga Melk…
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 43/1999 um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðará Íslandi var samþykkt á Alþingi 17.desember 2025. Lögin öðlast þegar gildi en ákvæðin koma til framkvæmda 1. janúar 2026.Með samþykkt frumvarpsins hafa tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar verið framlengdar til ársins 2028. Með lagabreytingunni er því tryggt að framleiðsla kvikmynda- og sjónvarpsefnis geti áfram sótt um 25% eða 35% endurgreiðslu af framleiðslukostnaði sem til fellur við framleiðslu kvikmynda eða sjónvarpsefnis hér á landi, uppfylli verkefnin skilyrði laganna og regl…
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um stjórn vatnamála. Frumvarpsdrögin voru unnin af verkefnahópi sem skipaður var af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Markmið frumvarpsins er m.a. að kveða á um að vernda vatn og vistkerfi þess þannig að vatn njóti heildstæðrar verndar. Verndinni er ætlað að koma í veg fyrir hnignun á ástandi vatnavistkerfa og jafnframt að vernda og bæta ástand þeirra. Jafnframt er frumvarpinu ætlað að stuðla að sjálfbærri nýtingu vatns og langtímavernd vatnsauðlindarinnar …
Samkvæmt lögum um tekjuskatt hækka persónuafsláttur og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga í upphafi hvers árs sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði að viðbættri hækkun vegna framleiðnivaxtar. Miðað er við 1% árlega aukningu framleiðni og er það mat tekið til endurskoðunar á 5 ára fresti, næst fyrir tekjuárið 2027. Hækkun vísitölu neysluverðs liggur nú fyrir og nemur hún 4,5% á 12 mánaða tímabili. Heildarhækkun viðmiðunarfjárhæða verður því 5,5%. Tekjuskattsprósentan er óbreytt frá fyrra ári sem og hámarksútsvar sveitarfélaga. Vegið meðal útsvars reiknast út frá útsvars…
Absentee voting abroad concerning thereferendum on 29 August 2026 on the resumption of EU accession negotiationsstarted on 27 July 2026. We remind those voters that would like to cast a vote, but will be abroad on the day of the referendum, to vote in Iceland before leaving the country, if possible, or to contact embassies or honorary consuls in the country the voter is based in to ascertain where and when to vote. Detailed information about the location and opening hours at Icelandic diplomatic missions and honorary consulscan be found here. Voters must present valid personal identificatio…
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur gefið út stefnu íslenskra stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni til ársins 2030. Staða líffræðilegrar fjölbreytni á heimsvísu er alvarleg. Náttúrunni hnignar vegna áhrifa loftslagsbreytinga, landnotkunar, mengunar, framandi ágengra tegunda og annarra álagsþátta og er náttúra Íslands ekki undanskilin þessari þróun. Með stefnunni, sem tekur mið af stefnu Samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni, setur Ísland sér skýr markmið og tekur þátt í sameiginlegu átaki um að snúa þróun hnignunar líffræðilegrar fjölbre…
Með markvissri aðgerðaáætlun og innleiðingu á nýju verklagi tókstSvefnmiðstöð Landspítalaá liðnu ári að stytta bið einstaklinga eftir meðferð við kæfisvefni úr sjö mánuðum í einn. Biðtíminn er nú innan þjónustumarkmiða. Tölur benda einnig til þess að meðferðarheldni þeirra sem hefja meðferð hafi aukist umtalsvert, eða um 20% á milli ára. Fjallað er um árangur Svefnmiðstöðvarinnar í tilkynningu á vef Landspítala. Þar kemur einnig fram að áfram verði unnið að umbótum í starfseminni til að efla og bæta þjónustuna. Nú sé unnið að gerð stuttra fræðslumyndbanda til að undirbúa einstaklinga betur áð…
Upptaka á hlaðvarpinu Á öðrum bjór Fundur með þingforseta og þingflokksformönnum á Alþingi Heimsókn He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi
Ferðadagur vegna óformlegs ráðherrafundar Evrópuráðsins í Strassborg Óformlegur ráðherrafundur Evrópuráðsins í Strassborg um fólksflutninga í ljósi Mannréttindasáttmála Evrópu Fundur með fulltrúum Dómarafélags Íslands Óundirbúnar fyrirspurnir á Alþingi Sérstök umræða á Alþingi við Snorra Másson um skýrslu starfshóps um þróun í útgáfu dvalarleyfa og misræmi við önnur Norðurlönd Fundur með Avraham Feldman rabbía
Fundur með Ölmu Möller heilbrigðisráðherra Óundirbúnar fyrirspurnir á Alþingi Kynning á tillögum Ríkislögreglustjóra, Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og Útlendingastofnunar um samræmdar aðgerðir til að sporna gegn skipulagðri brotastarfsemi EES- og EFTA-borgara hér á landi Opnunarávarp á norrænni ráðstefnu Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra Upptaka á hlaðvarpinu Ein pæling Fundur með Grími Hergeirssyni ríkislögreglustjóra
Óundirbúnar fyrirspurnir á Alþingi Framlagning frumvarps til laga um almannavarnir á Alþingi Viðtaka ársskýrslu kærunefndar jafnréttismála fyrir árið 2024 Kynning stefnumótunar í löggæslu á lögregluráðsfundi Fundur með Steinþóri Gunnarssyni Fundur með fulltrúum Lífs án ofbeldis Fundur með starfshópi um aukið jafnræði í atkvæðavægi og þingsætadreifingu
Hinn 5. desember 2025 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingablaði laus til umsóknar tvö embætti héraðsdómara. Annars vegar er um að ræða skipun í embætti dómara sem mun hafa starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur en sinna störfum við alla héraðsdómstólana eftir ákvörðun dómstólasýslunnar. Hins vegar setningu í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur meðan á leyfi skipaðs dómara stendur. Umsóknarfrestur rann út þann 22. desember síðastliðinn. Umsækjendur um bæði embættin eru: Umsækjendur eingöngu um skipun í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Re…