22 December 2025Samþykktar breytingar á lögum um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðarFrumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 43/1999 um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi var samþykkt á Alþingi 17.desember 2025. Lögin öðlast þegar gildi en ákvæðin koma til framkvæmda 1. janúar 2026.
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 43/1999 um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðará Íslandi var samþykkt á Alþingi 17.desember 2025. Lögin öðlast þegar gildi en ákvæðin koma til framkvæmda 1. janúar 2026.Með samþykkt frumvarpsins hafa tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar verið framlengdar til ársins 2028. Með lagabreytingunni er því tryggt að framleiðsla kvikmynda- og sjónvarpsefnis geti áfram sótt um 25% eða 35% endurgreiðslu af framleiðslukostnaði sem til fellur við framleiðslu kvikmynda eða sjónvarpsefnis hér á landi, uppfylli verkefnin skilyrði laganna og reglugerðar.Jafnframt er tekið fram í bráðabirgðaákvæði laganna að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið muni setja á laggirnar starfshóp ásamt fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem hefur það hlutverk að endurskoða ákvæði laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi og skila tillögum til ráðherra. Starfshópnum verður falið að halda áfram greiningarvinnunni og leggja fram tillögur að frekari breytingum á kerfinu fyrir 1. mars 2026. Ráðgert er að starfshópurinn sé í góðu samráði helstu aðila kvikmyndagerðar.
1. Tímaskilyrði fyrir útborgun stórra endurgreiðslnaSett er nýtt ákvæði sem heimilar að fresta útborgun endurgreiðslu þegar áætluð eða endanleg endurgreiðsla nemur 300 milljónum króna eða meira. Í slíkum tilvikum er kveðið á um að útborgun geti ekki farið fram fyrr en að liðnum a.m.k. 18 mánuðum frá útgáfu vilyrðis um endurgreiðslu. Ákvæðið á einnig um vilyrði sem þegar hafa verið gefin út.2. Laun og verktakagreiðslur innan EES geta myndað stofn til endurgreiðsluLögfest er skýr heimild til að telja laun og verktakagreiðslur sem greiddar hafa verið til aðila sem skattskyldir eru innan EES til stofns til endurgreiðslu, enda falli a.m.k. 80% af heildarframleiðslukostnaði verkefnis til á Íslandi. Jafnframt er kveðið á um heimild til að óska eftir endurupptöku mála þar sem slíkum kostnaði hefur áður verið hafnað á grundvelli eldri framkvæmdar. Heimildin tekur eingöngu til útborgunarumsókna sem bárust á árinu 2024 og 2025.3. Sérákvæði um 35% endurgreiðslu fyrir barna- og ungmennaefniMeð breytingunum er kveðið á um að kvikmynda- og sjónvarpsefni sem sérstaklega er ætlað börnum og ungmennum geti nú hlotið 35% endurgreiðslu, að uppfylltum nánari skilyrðum laganna. Markmiðið er að efla stöðu slíks efnis í ljósi sérstakra áskorana í fjármögnun og dreifingu. Nefnd um endurgreiðslur upplýsir umsækjendur sem eru með útgefin vilyrði fyrir endurgreiðslu vegna framleiðslu barna- og/eða ungmennaefnis um hækkunina og gefur þeim tækifæri til að óska eftir endurákvörðun með hliðsjón af breytingum. Umsækjendur hafa 90 daga til að bregðast við frá tilkynningu nefndarinnar.4. Skýrari reglur um upphaf aðalframleiðslutímabilsNýtt ákvæði kveður á um að aðalframleiðslutímabil verkefnis skuli hefjast innan eins árs frá dagsetningu vilyrðis fyrir endurgreiðslu. Umsóknaraðila ber að tilkynna nefnd um endurgreiðslur hvenær aðalframleiðslutímabil hefst. Hafi aðalframleiðslutímabil ekki hafist innan tilskilins tíma, og ekki borist rökstudd beiðni um framlengingu, fellur vilyrðið sjálfkrafa úr gildi. Þessu ákvæði verður ekki beitt við afgreiðslu verkefna sem þegar hafa hlotið vilyrði um endurgreiðslur.Aukinn fyrirsjáanleiki í framkvæmd kerfisinsMeð breytingunum er leitast við að styrkja framkvæmd endurgreiðslukerfisins, auka skýrleika um réttindi og skyldur umsækjenda og tryggja betri áætlanagerð, án þess að breyta grundvallarforsendum kerfisins eða almennu endurgreiðsluhlutfalli.Kvikmyndamiðstöð Íslandsmun á næstunni birta nánari leiðbeiningar um framkvæmd laganna og veita frekari upplýsingar eftir því sem þörf krefur.