22 December 2025Frumvarp til nýrra laga um stjórn vatnamála í samráðsgáttUmhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um stjórn vatnamála.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um stjórn vatnamála. Frumvarpsdrögin voru unnin af verkefnahópi sem skipaður var af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Markmið frumvarpsins er m.a. að kveða á um að vernda vatn og vistkerfi þess þannig að vatn njóti heildstæðrar verndar. Verndinni er ætlað að koma í veg fyrir hnignun á ástandi vatnavistkerfa og jafnframt að vernda og bæta ástand þeirra. Jafnframt er frumvarpinu ætlað að stuðla að sjálfbærri nýtingu vatns og langtímavernd vatnsauðlindarinnar þannig að jafnvægi sé á milli vatnstöku og endurnýjunar. Frumvarpinu er ætlað að endurspegla sem best kjarna vatnatilskipunar og mæla fyrir um skilvirka framkvæmd og samstarf stjórnvalda á sviði vatnamála. Er frumvarpinu ætlað að tryggja lágmarkskröfur vatnatilskipunarinnar og gengur því ekki lengra en þær kröfur mæla fyrir um.
Helstu breytingar sem frumvarpsdrögin fela í sér frá gildandi lögum eru ákvæði er lúta að umhverfismarkmiðum og málsmeðferð. Mikilvægt er að lög um stjórn vatnamála feli í sér skýrar málsmeðferðarreglur um heimildir og ákvarðanir stjórnvalda svo sem um veitingu leyfa fyrir framkvæmdum og starfsemi. Þá er skerpt á hlutverki Umhverfis- og orkustofnunar og lagðar til breytingar á hlutverki vatnaráðs. Einnig eru nokkrar breytingar varðandi endurskoðun vatnaáætlunar og efni aðgerðaráætlunar og vöktunaráætlunar.
Lög um stjórn vatnamála innleiða tilskipun Evrópuþingsins og -ráðsins (ESB) 2000/60 frá 23. október 2000 um aðgerðarramma Bandalagsins um stefnu í vatnsmálum, vatnatilskipunarinnar. Þörf hefur verið á að auka skýrleika laganna, svo sem til að tryggja málsmeðferðarreglur og heimildir stjórnvalda til ákvarðanatöku.
Umhverfis- og orkustofnun er ætlað að gegna miðlægu stjórnsýsluhlutverki við framkvæmd nýrra laga. Gert er ráð fyrir að stofnunin vinni tillögur að vatnáætlun og aðgerða- og vöktunaráætlun, sem eru stýritæki við framfylgd vatnsverndar. Stofnuninni er ætlað í þessari vinnu að eiga víðtækt samráð við ráðgjafarnefnd fagstofnana og eftirlitsaðila og samráðsvettvang hagaðila og félagasamtaka.
Athygli er vakin á því að umsagnarfrestur vegna frumvarpsins í Samráðsgátt stjórnvalda er til 26. janúar.
Frumvarp til laga um stjórn vatnamála