23 December 2025Frumvarp um sterkari lagaumgjörð ofanflóðavarna lagt fram í SamráðsgáttUmhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi sem felur í sér ýmsar breytingar á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi sem felur í sér ýmsar breytingar á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.
Frumvarpinu er ætlað að styrkja umgjörð ofanflóðavarna og skerpa á því markmiði laganna að aftra manntjóni og slysum af völdum ofanflóða, einkum á heimilum og mennta- og heilbrigðisstofnunum.
Á meðal helstu breytinga sem frumvarpsdrögin fela í sér er aukin kostnaðarhlutdeild ríkisins í viðhaldi varnarmannvirkja, takmarkanir á skipulagi óbyggðra svæða, nema tryggt sé að áhætta fólks með tilliti til ofanflóða verði ásættanleg án sérstakra varnarvirkja, ákvæði um endurskoðun hættumats hafi forsendur breyst og ákvæði um heimild Vegagerðarinnar til þess að taka að sér verkefni fyrir ríki og sveitarfélög sem tengjast snjóflóðavörnum.
Þá er lagt til að óheimilt verði að dvelja í eða á eignum á hættusvæði í þéttbýli á tímabilinu 1. nóvember til 30. apríl, en undantekning er þó gerð vegna atvinnustarfsemi sem fram fer á hættusvæði og heildaráhætta á viðkomandi svæði er ekki aukin, s.s. með fjölgun starfsmanna eða annars konar aukinni viðveru. Er einnig lagt til að lögreglustjóri fái heimild til að sekta einstaklinga sem brjóta gegn þessu banni, auk þess sem lögreglustjóri fær heimild til að beita valdi til þess að rýma húsnæði eða svæði við þessar aðstæður ef þörf krefur.
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Það er löngu tímabært að styrkja lagaumgjörð ofanflóðavarna. Með þessu frumvarpi stígum við stór skref í þá veru. Snjóflóðavarnargarðar hafa ítrekað sannað gildi sitt og ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur lagt áherslu á að hraða brýnustu verkefnum með verulegri innspýtingu fjármuna samkvæmt fjármálaáætlun og fjárlögum. Þessar lagabreytingar eru liður í sömu vegferð. Ofanflóðavarnir eru eilífðarverkefni, þær kalla á stöðugt viðhald og endurbætur og að skapað sé rými, bæði fjárhagslega og skipulagslega, fyrir endurskoðun og uppfærslu varna með nýrri þekkingu, þróaðri reiknilíkönum og aukinni gagnasöfnun. Þá er brýnt að lagarammi og ábyrgðarskipting sé skýr.“
Athygli er vakin á því að umsagnarfrestur vegna frumvarpsins í samráðsgátt stjórnvalda er til 16. janúar nk.
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum