Speech
Kristrún Frostadóttir  ·  2026-07-31 00:00

29 December 2025Skjólshús sett á fót – nýtt úrræði í geðheilbrigðisþjónustuÍ dag skrifuðu félags- og húsnæðismálaráðherra og heilbrigðisráðherra undir samstarfssamning við landssamtökin Geðhjálp um stofnun skjólshúss fyrir fólk í tilfinningalegri krísu vegna andlegra áskorana. Um er að ræða tilraunaverkefni til þriggja ára þar sem ráðuneytin tvö leggja til samtals 122 m.kr. á móti 150-180 m.kr. framlagi Geðhjálpar.…

Í dag skrifuðu félags- og húsnæðismálaráðherra og heilbrigðisráðherra undir samstarfssamning við landssamtökin Geðhjálp um stofnun skjólshúss fyrir fólk í tilfinningalegri krísu vegna andlegra áskorana. Um er að ræða tilraunaverkefni til þriggja ára þar sem ráðuneytin tvö leggja til samtals 122 m.kr. á móti 150-180 m.kr. framlagi Geðhjálpar. Stefnt er að því að opna skjólshúsið á fyrri hluta næsta árs (2026).

Svava Arnardóttir, formaður Geðhjálpar: „Við hjá Geðhjálp erum í skýjunum með að þessi draumur okkar margra sé loksins að verða að veruleika. Við erum afar þakklát stjórnvöldum að hafa lagt verkefninu lið með jafn myndarlegum hætti og raun ber vitni. Þetta er sannkallaður gleðidagur fyrir okkur öll.“

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra: „Aukið aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu er eitt af forgangsmálum ríkisstjórnarinnar. Með stofnun Skjólshúss verður stigið mikilvægt skref í að fjölga valkostum fyrir fólk í andlegri krísu en sambærilegt úrræði hefur ekki verið starfrækt hér á landi áður en Skjólshús er lágþröskuldaúrræði og byggir hugmyndafræði þess á sjálfsákvörðunarrétti einstaklinga og jafningjastuðningi. Opnun Skjólshúss mun styrkja heildstæða geðþjónustu hér á landi með möguleika á að fólk geti fyrr, og á eigin forsendum, leitað sér aðstoðar.“

Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra: „Það er engin heilsa án geðheilsu og þess vegna skiptir svo miklu máli að við byggjum upp úrræði sem grípa fólk fyrr. Skjólshús verður öruggt og kærleiksríkt athvarf þar sem fólk getur fengið stuðning á sínum forsendum, með sjálfsákvörðunarrétt og mannúð að leiðarljósi.“

Skjólshús er nýtt úrræði þar sem boðið verður upp á skammtímadvöl í allt að tvær vikur, einstaklingum að kostnaðarlausu. Í húsinu geta allt að fimm einstaklingar dvalið á hverjum tíma. Öll starfsemi skjólshússins fer fram á jafningjagrundvelli þar sem allt starfsfólk og stjórn hússins er í höndum einstaklinga með persónulega reynslu af andlegum áskorunum.

Víða erlendis hefur gefið góða raun að bjóða upp á öruggt athvarf þangað sem fólk getur leitað þegar það treystir sér ekki til þess að vera heima vegna andlegrar krísu. Skjólshús er annar valmöguleiki í geðþjónustu á Íslandi þangað sem fólk getur leitað áður en það telur sig þurfa innlögn á geðdeild eða í staðinn fyrir slíka innlögn. Úrræðið er mikilvægur liður í að efla framboð og bjóða upp á fleiri valmöguleika til að grípa fólk í vanlíðan.

Grunngildi skjólshúsa eru sjálfsákvörðunarréttur einstaklingsins til að ráða eigin lífi, samvinna jafningja og trú á því að vöxtur og bati séu möguleg fyrir okkur öll. Starfsfólk skjólshúss vinnur eftir áfallamiðaðri nálgun, mannúð og mannréttindum. Einstaklingar leita í skjólshúsið á eigin forsendum, þeim er aldrei vísað þangað eða þvingaðir til þátttöku.

Mikil áhersla er lögð á að koma í veg fyrir valdbeitingu og engir fagaðilar vinna í skjólshúsinu nema þau hafi persónulega reynslu af andlegum áskorunum og séu tilbúin til að nýta hana markvisst í starfinu. Starfsfólk tekur ekki ábyrgð á lyfjagjöf og engin eiginleg meðferð fer fram í skjólshúsinu. Öll sem starfa í skjólshúsinu hafa lokið þjálfun í jafningjastuðningi (e. Intentional peer support) og mæta einstaklingunum með mennskuna í fyrirrúmi.

Gríðarleg þörf er á slíku úrræði þar sem sífellt fleira fólk tekst á við andlegar áskoranir. Hingað til hefur einungis einn valkostur staðið þessum hópi til boða þegar horft er til sólarhringsdvalar. Skjólshús byggir á annarri hugmyndafræði sem miðlar jafningjareynslu og bata. Ávinningurinn af því að vinna með ofangreindum hætti er sá að fólk fær aðstoðina þegar það leitar sér hjálpar og á sínum forsendum.

Sjálfsákvörðunarréttur einstaklingsins er í fyrirrúmi og líklegt að við komandi nái fyrr jafnvægi, gefandi tengslum og virkri samfélagsþátttöku. Að sama skapi verður hér til fjöldi nýrra starfa, bæði hlutastörf og full störf. Störfin bjóða fólki með persónulega reynslu af andlegum áskorunum upp á tækifæri til að nýta þekkingu sína til góðs, fara aftur út á vinnumarkað og skapa aukin félagsleg verðmæti, auk fjárhagslegs ávinnings.