22 December 2025Breytingar á staðgreiðslu um áramótinSamkvæmt lögum um tekjuskatt hækka persónuafsláttur og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga í upphafi hvers árs sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði að viðbættri hækkun vegna framleiðnivaxtar.
Samkvæmt lögum um tekjuskatt hækka persónuafsláttur og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga í upphafi hvers árs sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði að viðbættri hækkun vegna framleiðnivaxtar. Miðað er við 1% árlega aukningu framleiðni og er það mat tekið til endurskoðunar á 5 ára fresti, næst fyrir tekjuárið 2027.
Hækkun vísitölu neysluverðs liggur nú fyrir og nemur hún 4,5% á 12 mánaða tímabili. Heildarhækkun viðmiðunarfjárhæða verður því 5,5%. Tekjuskattsprósentan er óbreytt frá fyrra ári sem og hámarksútsvar sveitarfélaga. Vegið meðal útsvars reiknast út frá útsvarsprósentu sveitarfélaga á árinu 2026 að teknu tilliti til tekjuskattsstofns hvers sveitarfélags og verður óbreytt á milli ára eða 14,94%.
Á tekjuárinu 2026 fellur út heimild hjóna og sambúðaraðila að samnýta annað og þriðja þrep, í þeim tilvikum þegar annar aðilinn er með tekjuskattsstofn í þriðja þrepi en hinn ekki.
Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka úr 180.000 í 300.000 en þau hafa verið óbreytt frá árinu 2014. Tekjur barna umfram 300.000 bera 6% skatthlutfall (4% tekjuskatt og 2% útsvar).
Í eftirfarandi töflu má sjá skattprósentur, skattleysismörk, persónuafslátt og þrepamörk í kr. fyrir árin 2024 og 2025.
Skattleysismörk tekjuskattsstofns
*að teknu tilliti til lögbundinnar iðgjaldsgreiðslu launþega í lífeyrissjóð.
Engar breytingar verða á tryggingagjaldi frá fyrra ári. Skiptingu þess má sjá í meðfylgjandi töflu.
Gjald í Ábyrgðasjóð launavegna gjaldþrota