30 December 2025Mál nr. 53/2025. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.Stöðvunarkröfu hafnað.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 28. nóvember 2025í máli nr. 53/2025:Gagnaeyðing ehf.gegnFjársýslu ríkisins
ÚtdrátturKærunefnd útboðsmála hafnaði stöðvunarkröfu kæranda þar sem skilyrði 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup voru ekki talin uppfyllt.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 22. október 2025 kærði Gagnaeyðing ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Fjársýslu ríkisins (hér eftir „varnaraðili“) nr. 22203 auðkennt „FA Waste Service“.
Kærandi krefst þess að innkaupaferli varnaraðila verði fellt úr gildi og lagt verði fyrir varnaraðila að auglýsa útboðið á nýjan leik með þeim hætti að móttaka, meðferð og eyðing trúnaðargagna verði ekki hluti af útboðinu. Þá krefst kærandi þess að innkaupaferli varnaraðila verði stöðvað um stundarsakir þar til endanlega verði skorið úr kæru og að varnaraðila verði gert að greiða kæranda kostnað við að hafa kæruna uppi.
Varnaraðila var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum sem og hann gerði með greinargerð 29. október 2025. Varnaraðili krefst þess að kærunefnd útboðsmála hafni öllum kröfum kæranda með endanlegum úrskurði.
Kærunefnd útboðsmála afhenti kæranda afrit af greinargerð varnaraðila samkvæmt beiðni hans þar að lútandi og lagði kærandi fram frekari athugasemdir 6. nóvember 2025.
Með tölvupósti 19. nóvember 2025 til kærunefndar útboðsmála upplýsti varnaraðili að öllum tilboðum í útboðinu hefði verið hafnað á þeim grundvelli að forsendur útboðsins hefðu brostið, sbr. 2. mgr. 83. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Þá upplýsti varnaraðili að úrgangsþjónusta yrði boðin út að nýju innan skamms. Þá afhenti varnaraðili kærunefnd útboðsmála afrit af bréfi 17. nóvember 2025 þar sem hann tilkynnti bjóðendum um höfnun allra tilboða í útboðinu.
Samkvæmt 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup er kærunefnd útboðsmála, að kröfu kæranda, heimilt að stöðva innkaupaferli eða samningsgerð um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru, enda hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögunum eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.
Í máli þessu liggur fyrir að varnaraðili hefur hafnað öllum tilboðum og stendur því ekki til að gera samning á grundvelli hins kærða útboðs. Af því leiðir að hvorki er til staðar innkaupaferli né er fyrirhuguð samningsgerð sem geta verið andlag kröfu um stöðvun. Kröfu kæranda um að innkaupaferli varnaraðila verði stöðvað um stundarsakir er því hafnað.
Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar aðilar hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.
Hafnað er kröfu kæranda, Gagnaeyðingar ehf., um að innkaupaferli varnaraðila, Fjársýslu ríkisins, nr. 22203 auðkennt „FA Waste Service“, verði stöðvað um stundarsakir.