Ísland er nú fullgildur aðili að Alþjóðastofnun um leiðarmerki í siglingum (e. International Organization for Marine Aids to Navigation). Ritað var undir stofnsáttmála nýju alþjóðastofnunarinnar árið 2021. Fullgildingarskjöl voru afhent franska utanríkisráðuneytinu í september á þessu ári en samningurinn tók gildi gagnvart Íslandi 9. október. Í samningnum segir að tilgangur stofnunarinnar sé að leiða saman ríkisstjórnir og stofnanir og fyrirtæki sem koma að reglusetningu, veitingu, viðhaldi eða starfrækslu leiðarmerkja til að vinna að eftirtöldum markmiðum: Nýja stofnunin tók við hlutverki I…
Nýverið lauk úthlutunarferli tollkvóta á landbúnaðarvörum sem taka allir gildi 1. janúar nk. og gilda ýmist í 6 eða 12 mánuði. Í nær öllum tilvikum var umfram eftirspurn eftir tollkvótum og var þeim því úthlutað með útboði. Um er að ræða tollkvóta sem veita heimild til innflutnings á kjöti, unnum kjötvörum, ostum og plöntum án tolla eða á lægri tollum en tollskrá segir til um. Um niðurstöður hverrar úthlutunar má lesa að neðan. Mánudaginn 15. desember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 1248/2025 f…
Úrskurður kærunefndar útboðsmála 10. nóvember 2025í máli nr. 27/2025:Borgarverk ehf.gegnFramkvæmdasýslunni – RíkiseignumVesturbyggð ogSuðurverki hf. LykilorðSkilmáli. Tilboðsgögn. Ákvörðun felld úr gildi. Málskostnaður. ÚtdrátturÍ málinu krafðist B þess að felldar yrðu úr gildi ákvarðanir F og V um að hafna tilboði hans og velja tilboð S í útboði um ofanflóðavarnir í Bíldudal. Laut ágreiningur einkum að því hvort B hefði uppfyllt skilyrði útboðsgagna um að lágmarks veltufjárhlutfall bjóðanda skyldi vera 1 eða hærra. Við mat á tilboði B höfðu F og V litið til ársreiknings B fyrir árið 2023 en…
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 6. nóvember 2025í máli nr. 43/2025:Ísold ehf.gegnFjársýslu ríkisins,Þjóðskjalasafn Íslands ogRými – Ofnasmiðjunni ehf. LykilorðSjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt. ÚtdrátturFallist var á kröfu F og Þ um að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016. Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 19. september 2025 kærði Ísold ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Fjársýslu ríkisins fyrir hönd Þjóðskjalasafns Íslands (hér eftir „varnaraðilar“) nr. 23086 auðkennt „Hillukerfi fyrir Þjóðskjalasafn Íslands“…
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 27. október 2025í máli nr. 44/2025:Rými – Ofnasmiðjan ehf.gegnLandspítalanum ogKone ehf. LykilorðKrafa um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar. Bindandi samningur. ÚtdrátturÍ ákvörðun kærunefndar útboðsmála var lagt til grundvallar að bindandi samningur væri til staðar milli varnaraðila og K. Kærunefnd útboðsmála vísaði því frá kröfum varnaraðila og K, um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt, og hafnaði kröfu R um að samningsgerð í útboðinu yrði stöðvuð. Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 29. september 2025 kærði Rými – Ofnasmi…
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 16. október 2025í máli nr. 26/2025:Embla Medical hf. ogForMotion ehf.gegnFjársýslu ríkisins,Sjúkratryggingum Íslands,Fastus ehf.,Stoð ehf.,Stoðtækni ehf. ogStuðlabergi ehf. LykilorðSjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt. ÚtdrátturKærunefnd útboðsmála féllst á kröfu varnaraðila um að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 13. júní 2025 kærði Embla Medical hf., áður Össur hf., og ForMotion ehf. (hér eftir sameiginlega vísað til sem …
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 16. október 2025í máli nr. 25/2025:Stoð ehf.gegnFjársýslu ríkisins,Sjúkratrygginga Íslands ogStoðtækni ehf. LykilorðSjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt. ÚtdrátturKærunefnd útboðsmála féllst á kröfu varnaraðila um að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 13. júní 2025 kærði Stoð ehf. (hér eftir „kærandi“) ákvörðun Fjársýslu ríkisins f.h. Sjúkratrygginga Íslands (hér eftir „varnaraðili“), dags. 3. júní 2025, að velja tilboð Stoð…
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, sem einnig fer með málefni mennta- og barnamálaráðuneytisins, er farinn í tímabundið leyfi vegna feðraorlofs. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mun leysa Eyjólf af á meðan leyfinu stendur og fara með málefni innviðaráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis. Eyjólfur mun gera hlé á feðraorlofi sínu upp úr miðjum janúar til að mæla fyrir nýrri samgönguáætlun.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skipað Unnþór Jónsson í embætti varaformanns úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá og með 1. janúar. Unnþór hefur um nokkurt skeið gegnt störfum bæði á málefnasviði nefndarinnar, sem og við nefndar- og úrskurðarstörf innan Stjórnarráðsins. Unnþór hefur á árinu 2025 starfað sem settur varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og var einnig settur varaformaður nefndarinnar árið 2022. Hann hefur starfað sem lögfræðingur hjá úrskurðarnefndinni frá árinu 2018. Unnþór hefur jafnframt setið í úrskurðarnefnd velferðarmála frá ári…
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til breytinga á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun um vindorku og verndarflokk. Frumvarpinu er ætlað að tryggja vernd náttúruverðmæta og landslagsheilda, lögbinda forræði nærsamfélags þegar kemur að vindorkunýtingu en jafnframt að liðka fyrir uppbyggingu sem fellur að byggðasjónarmiðum og styður við raforkuöryggi og stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Lagt er til að vindorka lúti að meginstefnu sömu lögmálum og aðrir orkukostir í rammaáætlun en þó með mikilvægum undantekn…
Alþingi hefur samþykkt frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra um hlutdeildarlán en með þeim er stuðningur aukinn við fyrstu kaupendur við að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Hlutdeildarláneru vaxta- og afborgunarlaus lán frá ríkinu fyrir hluta af verði fyrstu fasteignar. Með þeim þarf fólk lægra fasteignalán og lægri útborgun. Þeir sem eru að koma inn á húsnæðismarkaðinn þurfa þá ekki að reiða sig á stuðning foreldra eða annarra og eiga auðveldara með að standast greiðslumat og lánþegaskilyrði. Lögin eru hluti affyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnarog fela í sér fjölmargar br…
Alþingi hefur samþykkt frumvarp Ingu Sæland, félag og húsnæðismálaráðherra sem felur í sér að öryrkjum verður tryggð ævilöng aldursviðbót og að almennt frítekjumark ellilífeyris hækki. „Hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyrisþega og ævilöng aldursviðbót eru breytingar í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem boðar aðgerðir til að uppræta fátækt og lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega. Með frumvarpinu eru stigin mikilvæg skref í átt að réttlátara samfélagi,“ sagðiInga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherraí framsöguræðu sinni í þinginu. Meginatriði fru…
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur lagt fram til kynningar og umsagnar í samráðsgátt stjórnvaldadrög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um lagareldiásamtdrögum að frumvarpi um breytingar á lögum um lax- og silungsveiði. Markmið frumvarpsins sem nú er kynnt varðandi lagareldi er að styrkja lagaramma atvinnugreinarinnar og sporna gegn neikvæðum umhverfisáhrifum með því að innleiða hvata og þannig skapa traustari grundvöll fyrir verðmætasköpun og sjálfbæran vöxt greinarinnar til framtíðar. Frumvarpsdrögin gera ráð fyrir að ein heildarlög gildi um starfsemi lagareldis, þ.e. um sta…
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 10. nóvember 2025í máli nr. 29/2025:Alefli ehf.gegnFélagsbústöðum ogMannverki ehf. LykilorðSjálfkrafa stöðvun samningsgerðar. ÚtdrátturKærunefnd útboðsmála hafnaði kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 30. júní 2025 kærði Alefli ehf. ákvörðun Félagsbústaða (hér eftir „varnaraðili“) að velja tilboð Mannverks ehf. í alútboði auðkenndu „Stekkjarbakki – íbúðakjarni“. Kærandi krefst þess að ákvörðun varnarað…
Ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins var mynduð á þessum degi fyrir réttu ári. Það var gleðidagur, eins og alltaf þegar sól fer hækkandi. Í þetta sinn eftir sögulegar kosningar þar sem þjóðin valdi nýtt upphaf. Það hefur verið heiður lífs míns að vinna í þjónustu þjóðar sem forsætisráðherra. Ég er þakklát fyrir traustið og stuðninginn á hverjum einasta degi. Og ég gleðst yfir árangri og verkgleði samráðherra minna og stjórnarráðsins alls á liðnu ári. Við gerum okkar besta fyrir fólkið í landinu og fyrir Ísland til framtíðar. Margt hefur gengið vel. Margt getum við gert …
Úrskurður kærunefndar útboðsmála 10. nóvember 2025í máli nr. 16/2025:Exton ehf.gegnsveitarfélaginu Hornafirði ogAtendi ehf. LykilorðKærufrestur. Sérfræðingur. Útilokunarástæður. Tilboðsgögn. Ákvörðun um val tilboðs felld úr gildi. ÚtdrátturÁgreiningur málsins laut að útboði varnaraðila, H, varðandi kaup á nýjum hljóð-, ljósa- og myndkerfum fyrir Sindrabæ á Hornafirði. Á meðal ágreiningsefna málsins var hvort H hefði borið að útiloka A frá þátttöku í útboðinu á grundvelli 4. mgr. 68. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup þar sem skuldleysisvottorð, sem félagið lagði fram í framhaldi af fyr…
Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár.Úthlutunarnefnd skipa Anna Mjöll Karlsdóttir lögfræðingur (formaður), samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar Íslands, Gunnar Þór Tómasson löggiltur endurskoðandi, samkvæmt tilnefningu Ríkisendurskoðunar og Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Háskóla Íslands, samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra.Alls bárust 30 umsóknir um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla innan umsóknarfrests þar sem samtals…
Úrskurður kærunefndar útboðsmála 17. desember 2025í máli nr. 14/2025:Þröstur Jón Sigurðsson,Eygló Egilsdóttir,Garðar Heiðar Eyjólfsson ogLeifur Geir Hafsteinssonf.h. óstofnaðs einkahlutafélagsgegnVestmannaeyjabæ,Laugum ehf. ogÍ toppformi ehf. LykilorðSérleyfi. Reglugerð nr. 950/2017. Viðmiðunarfjárhæð. Auglýsing innkaupa. Ákvörðun um val tilboðs felld úr gildi. Lagt fyrir varnaraðila að bjóða innkaupin út að nýju. Álit á skaðabótaskyldu. Málskostnaður. ÚtdrátturV auglýsti á vefsíðu sinni eftir aðila til að byggja nýja heilsurækt við Íþróttamiðstöð sveitarfélagsins og reka hana í tengslum við…
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 28. nóvember 2025í máli nr. 39/2025:Öryggismiðstöð Íslands hf.gegnFjársýslu ríkisins,Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins ogIcepharma hf. LykilorðSjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt. ÚtdrátturKærunefnd útboðsmála féllst á kröfu varnaraðila um að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016. Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 31. júlí 2025 kærði Öryggismiðstöð Íslands hf. (hér eftir „kærandi“) þá ákvörðun Fjársýslu ríkisins (hér eftir „varnaraðili“) f.h. Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að af…
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, hefur skipað Jón Ásgeirsson í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu orkumála, Björn Helga Barkarson í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu náttúru- og minjaverndar og Steinunni Fjólu Sigurðardóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu umhverfisgæða. Þá hefur Logi Einarsson, settur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vegna skipunar skrifstofustjóra á skrifstofu loftslagsmála, skipað Magnús Örn Agnesar Sigurðsson í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu loftslagsmála. Fjórar stöður skrifstofustjóra í ráðuneytinu voru auglýstar…