18 December 2025Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum á landbúnaðarvörum sem taka gildi 1. janúar 2026Nýverið lauk úthlutunarferli tollkvóta á landbúnaðarvörum sem taka allir gildi 1. janúar nk. og gilda ýmist í 6 eða 12 mánuði. Í nær öllum tilvikum var umfram eftirspurn eftir tollkvótum og var þeim því úthlutað með útboði.
Nýverið lauk úthlutunarferli tollkvóta á landbúnaðarvörum sem taka allir gildi 1. janúar nk. og gilda ýmist í 6 eða 12 mánuði. Í nær öllum tilvikum var umfram eftirspurn eftir tollkvótum og var þeim því úthlutað með útboði. Um er að ræða tollkvóta sem veita heimild til innflutnings á kjöti, unnum kjötvörum, ostum og plöntum án tolla eða á lægri tollum en tollskrá segir til um. Um niðurstöður hverrar úthlutunar má lesa að neðan.
Mánudaginn 15. desember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 1248/2025 fyrir tímabilið 1. janúar 2026 til 30. júní 2026. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 27 tilboð í tollkvótann.
Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað að fullu. Samanlagt var 1.906 tonna tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 617 kr./kg.
(*) alifuglakjöt lífrænt ræktað/lausagöngu, í vörulið úr 0207(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla. Úthlutað með hlutkesti.
Nánari upplýsingar um niðurstöður útboðsins má finna hér.
Mánudaginn 15. desember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, samkvæmt reglugerð nr. 1246/2025 fyrir tímabilið 1. janúar 2026 til 31. desember 2026. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 3 tilboð í tollkvótann.Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað að fullu. Alls var 13 tonna tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 1 kr./kg.
Nánari upplýsingar um niðurstöður útboðsins má finna hér.
Mánudaginn 15. desember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum, með vísan til reglugerðar nr. 1249/2025 fyrir tímabilið 1. janúar 2026 til 31. janúar 2026. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 11 tilboð í tollkvótann.
Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað að fullu. Samanlagt var 48,3 tonna tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 551 kr./kg.
Nánari upplýsingar um niðurstöður útboðsins má finna hér.
Mánudaginn 15. desember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á blómum með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993 og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl. nr. 1247/2025 fyrir tímabilið 1. janúar 2026 til 30. júní 2026. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 5 tilboð í tollkvótann.Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var ekki úthlutað að fullu, en engar umsóknir bárust í pottaplöntur en blómstrandi plöntum var úthlutað á grundvelli umsókna. Samanlagt var 177.450 stk. tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 42 kr./stk.
Nánari upplýsingar um niðurstöður útboðsins má finna hér.