18 December 2025Ísland fullgildir samning um Alþjóðastofnun um leiðarmerki í siglingumÍsland er nú fullgildur aðili að Alþjóðastofnun um leiðarmerki í siglingum
Ísland er nú fullgildur aðili að Alþjóðastofnun um leiðarmerki í siglingum (e. International Organization for Marine Aids to Navigation). Ritað var undir stofnsáttmála nýju alþjóðastofnunarinnar árið 2021. Fullgildingarskjöl voru afhent franska utanríkisráðuneytinu í september á þessu ári en samningurinn tók gildi gagnvart Íslandi 9. október.
Í samningnum segir að tilgangur stofnunarinnar sé að leiða saman ríkisstjórnir og stofnanir og fyrirtæki sem koma að reglusetningu, veitingu, viðhaldi eða starfrækslu leiðarmerkja til að vinna að eftirtöldum markmiðum:
Nýja stofnunin tók við hlutverki IALA, alþjóðasamtaka vitastofnana á sviði leiðsögu skipa og vita (e. International Association of Marine Aids to Navigation and Lighthouse Authorities) og verður framvegis alþjóðleg milliríkjastofnun undir sömu skammstöfun. Vegagerðin og forverar hennar hafa verið aðilar að IALA allt frá stofnun samtakanna árið 1957, þegar þáverandi Vita- og hafnamálastofnun var formlega boðið að vera stofnaðili að samtökunum.