19 December 2025Unnþór Jónsson skipaður varaformaður úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamálaUmhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skipað Unnþór Jónsson í embætti varaformanns úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skipað Unnþór Jónsson í embætti varaformanns úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá og með 1. janúar. Unnþór hefur um nokkurt skeið gegnt störfum bæði á málefnasviði nefndarinnar, sem og við nefndar- og úrskurðarstörf innan Stjórnarráðsins.
Unnþór hefur á árinu 2025 starfað sem settur varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og var einnig settur varaformaður nefndarinnar árið 2022. Hann hefur starfað sem lögfræðingur hjá úrskurðarnefndinni frá árinu 2018.
Unnþór hefur jafnframt setið í úrskurðarnefnd velferðarmála frá árinu 2020, þar af í fjögur ár sem aðalmaður. Þá hefur Unnþór kennt umhverfisrétt við Háskóla Íslands og verið gestafyrirlesari við Háskólann á Bifröst um réttarúrræði stjórnsýslukæra með sérstakri áherslu á störf úrskurðarnefndarinnar.
Unnþór lauk grunnnámi í lögfræði við Háskóla Íslands árið 2013 og meistaragráðu í lögfræði frá sama skóla árið 2016.
Unnþór er giftur Viktoríu Guðmundsdóttur lögfræðingi og saman eiga þau fjögur börn.