Speech
Kristrún Frostadóttir  ·  2026-07-31 00:00

22 December 2025Mál nr. 44/2025. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.Krafa um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar. Bindandi samningur.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 27. október 2025í máli nr. 44/2025:Rými – Ofnasmiðjan ehf.gegnLandspítalanum ogKone ehf.

LykilorðKrafa um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar. Bindandi samningur.

ÚtdrátturÍ ákvörðun kærunefndar útboðsmála var lagt til grundvallar að bindandi samningur væri til staðar milli varnaraðila og K. Kærunefnd útboðsmála vísaði því frá kröfum varnaraðila og K, um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt, og hafnaði kröfu R um að samningsgerð í útboðinu yrði stöðvuð.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 29. september 2025 kærði Rými – Ofnasmiðjan ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Landspítalans (hér eftir „varnaraðili“) nr. 35035 auðkennt „Lyftur fyrir Barnaspítala Hringsins“.

Kærandi krefst þess að „kærunefnd útboðsmála felli ákvörðun kaupanda úr gildi“ og að „kærunefnd útboðsmála stöðvi gerð samnings við hæstbjóðanda með heimild í 107. gr. laga nr. 120/2016“.

Varnaraðila og Kone ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum.

Varnaraðili sendi tölvupóst til nefndarinnar 3. október 2025 og krefst þess að öllum kröfum kæranda verði hafnað og að honum verði dæmdur málskostnaður vegna málsins. Kone ehf. krefst þess í athugasemdum 9. sama mánaðar að hafnað verði kröfu um stöðvun samningsgerðar, það er sjálfkrafa stöðvun og/eða stöðvun um stundarsakir. Þá krefst Kone ehf. þess að öllum kröfum kæranda verði hafnað.

Með erindi 6. október 2025 óskaði kærunefnd útboðsmála eftir að varnaraðili legði fram tiltekin gögn. Varnaraðili svaraði erindinu 8. sama mánaðar, afhenti umbeðin gögn og kom á framfæri frekari upplýsingum. Í svari varnaraðila kom meðal annars fram að fyrir mistök hefði verið send út tilkynning um töku tilboðs til Kone ehf. þann 30. september 2025. Ástæða þess hefði verið að ekki hefðu allir starfsmenn innkaupadeildar spítalans vitað af því að kæra hefði borist deginum áður. Þá upplýsti varnaraðili að tilkynningin hefði verið afturkölluð.

Með erindi 9. október 2025 óskaði kærunefnd útboðsmála eftir að varnaraðili afhenti nefndinni tilteknar upplýsingar, þar með talið afrit af afturköllun hans á tilkynningu um töku tilboðs. Varnaraðili svaraði erindinu degi síðar, afhenti umbeðin gögn og kom á framfæri leiðréttingu á þegar veittum upplýsingum. Nánar tiltekið tók varnaraðili fram að taka tilboðsins hefði ekki verið eiginlega afturkölluð heldur útboðið stöðvað 7. október 2025 vegna kærunnar. Tilkynning um töku tilboðs hefði verið send út eftir að kæran hefði borist en eins og fram væri komið hefðu ekki allir starfsmenn innkaupadeildar vitað af kærunni. Tilkynningin væri því í raun ekki gild sem slík.

Varnaraðili sendi viðbótarathugasemdir til nefndarinnar 15. október 2025.

Með útboðsgögnum dagsettum 10. júlí 2025 óskaði varnaraðili eftir tilboðum í tvær víralyftur, sjúkrahúslyftur, til sjúkra- og fólksflutninga í skála Barnaspítala Hringsins á Hringbraut. Tilboð voru opnuð 22. ágúst sama ár og bárust þar tvö tilboð, annars vegar frá kæranda að fjárhæð 33.518.535 krónur og hins vegar frá Kone ehf. að fjárhæð 42.068.422 krónur.

Varnaraðili sendi út tilkynningu 17. september 2025 um val á tilboði Kone ehf. Í tilkynningunni var vitnað til 1. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og kom fram að ef ákvörðunin yrði ekki kærð og útboðið stöðvað væri heimilt að ganga til samninga frá og með 30. september 2025. Jafnframt sagði í tilkynningunni að bjóðendur ættu rétt á rökstuðningi fyrir höfnun á tilboðum sínum samkvæmt 85. gr. laga nr. 120/2016 og nánar fjallað um inntak þess réttar. Með tölvupósti 18. september 2025 óskaði kærandi meðal annars eftir rökstuðningi fyrir ákvörðuninni sem varnaraðili veitti degi síðar.

Kæra málsins barst nefndinni 29. september 2025 klukkan 14:52. Kærunefnd útboðsmála tilkynnti varnaraðila um kæruna sama dag klukkan 16:32 og óskaði meðal annars eftir upplýsingum hvort búið væri að velja tilboð og tilkynna um það.

Varnaraðili tilkynnti bjóðendum 30. september 2025 að tilboð Kone ehf. hefði verið endanlega samþykkt og kominn væri á bindandi samningur milli aðila. Með tilkynningu 7. október 2025 til bjóðenda upplýsti varnaraðili bjóðendur að vegna kæru væri útboðið stöðvað þar til leyst yrði úr henni.

Svo sem fyrr segir hefur varnaraðili komið á framfæri þeim upplýsingum að tilkynning um töku tilboðs Kone ehf. hafi verið send út fyrir mistök og sé ekki gild. Kone ehf. vísar meðal annars til 114. gr. laga nr. 120/2016 og byggir á að bindandi samningur hafi komist á með tilkynningu varnaraðila um samþykkt tilboðs félagsins.

Samkvæmt 1. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup er óheimilt að gera samning í kjölfar ákvörðunar um val tilboðs fyrr en að liðnum tíu daga biðtíma, vegna innkaupa yfir viðmiðunarfjárhæðum Evrópska efnahagssvæðisins, talið frá deginum eftir að tilkynning samkvæmt 1. og 2. mgr. 85. gr. telst birt. Í 1. mgr. 107. gr. segir að ef ákvörðun um val tilboðs er kærð innan lögboðins biðtíma samkvæmt 86. gr. sé gerð samnings óheimil þar til kærunefnd útboðsmála hefur endanlega leyst úr kærunni. Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar vegna kæru taki gildi þegar kaupanda megi vera kunnugt um kæruna, hvort heldur vegna tilkynningar kæranda samkvæmt 2. mgr. 106. gr. eða tilkynningar kærunefndar samkvæmt 1. mgr. 108. gr.

Miða verður við að verðmæti innkaupa varnaraðila hafi verið yfir viðmiðunarfjárhæðum Evrópska efnahagssvæðisins, sbr. 23. gr. laga nr. 120/2016 og reglugerð nr. 360/2022. Líkt og að framan greinir tilkynnti varnaraðili bjóðendum um val á tilboði Kone ehf. 17. september 2025. Lokadag biðtíma samkvæmt 1. mgr. 86. gr. bar því upp á laugardeginum 27. september 2025 og framlengdist til mánudagsins 29. sama mánaðar, sbr. til hliðsjónar úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 45/2021.

Kærandi lagði fram kæru sína 29. september 2025 klukkan 14:52 og þar með innan lögboðins biðtíma. Kærunefnd útboðsmála tilkynnti varnaraðila um kæruna með tölvupósti sama dag klukkan 16:32 en varnaraðila mátti vera kunnugt um kæruna frá þeim tíma, sbr. 1. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 108. gr. laga nr. 120/2016. Að þessu gættu og að virtum fyrirliggjandi gögnum og kröfugerð kæranda þykir mega líta svo á að kæra málsins hafi haft í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar í hinu kærða útboði. Verður jafnframt litið svo á að varnaraðili og Kone ehf. geri kröfu um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar í útboðinu verði aflétt.

Degi eftir móttöku kærunnar eða klukkan 10.57 þann 30. september 2025 sendi varnaraðili tilkynningu til bjóðenda um að tilboð Kone ehf. hefði verið endanlega samþykkt og því kominn á bindandi samningur milli aðila. Svo sem rakið er hér að framan hefur varnaraðili tekið fram að tilkynningin hafi verið send út fyrir mistök og sé ekki gild.

Samkvæmt 3. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup skal samþykkja tilboð endanlega með tilkynningu um töku tilboðs innan gildistíma þess og er þá kominn á bindandi samningur á grundvelli útboðsgagna og tilboðs bjóðanda. Í 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 segir að eftir að bindandi samningur samkvæmt lögunum hefur komist á verði hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að um gildi samninga, sem stofnað er til samkvæmt lögunum, fari að öðru leyti eftir almennum reglum fjármunaréttar. Samkvæmt 91. gr. laga nr. 120/2016 er kaupendum veittar afmarkaðar heimildir til að segja einhliða upp samningi á gildistíma hans auk þess sem eitt af úrræðum kærunefndar útboðsmála er að lýsa samninga óvirka, sbr. 1. mgr. 111. gr. og 115. gr. laganna.

Tilkynning varnaraðila 30. september 2025 hafði þau réttaráhrif að með henni komst á bindandi samningur milli varnaraðila og Kone ehf., sbr. fyrrgreind 3. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016, óháð því hvort hún hafi verið send út fyrir mistök, líkt og varnaraðili ber við í málinu. Í þessu samhengi má benda á að kærunefnd útboðsmála hefur lagt til grundvallar að lög nr. 120/2016 geri ekki ráð fyrir að kaupandi geti einhliða afturkallað tilkynningu um töku tilboðs, sbr. ákvörðun kærunefndar útboðsmála 5. september 2025 í máli nr. 35/2025. Kærunefnd útboðsmála hefur þó lagt til grundvallar að aðilar geti verið sammála að falla frá réttaráhrifum tilkynningar um töku tilboðs með þeim afleiðingum að bindandi samningur liggi ekki fyrir, sbr. ákvörðun kærunefndar útboðsmála 3. september 2025 í máli nr. 37/2025.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið að aðilar hafi verið sammála að falla frá réttaráhrifum tilkynningar um töku tilboðs og byggir Kone ehf. á því að bindandi samningur liggi fyrir. Þá er ljóst að samningnum hefur hvorki verið sagt upp eftir 91. gr. laga nr. 120/2016 né slitið með öðrum hætti eftir almennum reglum fjármunaréttarins. Þar að auki leiðir af 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 að það er á valdsviði dómstóla en ekki kærunefndarinnar að leysa úr ágreiningi um gildi samnings sem gerður hefur verið samkvæmt lögum nr. 120/2016, sbr. 3. mgr. 86. gr., og sem kaupandi hefur lýst yfir að sé ógildur á grundvelli almennra reglna fjármunaréttar. Kærunefndin getur fjallað um gildi ákvörðunar um uppsögn samnings eftir 91. gr. eða lýst yfir óvirkni hans en á hvorugt reynir í málinu eins og það liggur fyrir nefndinni, sbr. einnig fyrrgreind ákvörðun nefndarinnar í máli nr. 35/2025.

Samkvæmt framangreindu verður að líta svo á að til staðar sé bindandi samningur milli Kone ehf. og varnaraðila. Verður því að vísa frá kröfum um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt. Af sömu ástæðum verður að hafna kröfu kæranda um að samningsgerð verði stöðvuð.

Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar aðilar hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.

Vísað er frá kærunefnd útboðsmála kröfum varnaraðila, Landspítalans og Kone ehf., um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar í útboði nr. nr. 35035 auðkennt „Lyftur fyrir Barnaspítala Hringsins“. Hafnað er kröfu kæranda, Rými – Ofnasmiðjunnar ehf., um að samningsgerð í útboðinu verði stöðvuð.