Speech
Kristrún Frostadóttir  ·  2026-07-31 00:00

30 December 2025Björn Helgi, Jón, Steinunn Fjóla og Magnús Örn skipuð í embætti skrifstofustjóra í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinuJóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, hefur skipað Jón Ásgeirsson í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu orkumála, Björn Helga Barkarson í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu náttúru- og minjaverndar og Steinunni Fjólu Sigurðardóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu umhverfisgæða.…

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, hefur skipað Jón Ásgeirsson í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu orkumála, Björn Helga Barkarson í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu náttúru- og minjaverndar og Steinunni Fjólu Sigurðardóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu umhverfisgæða. Þá hefur Logi Einarsson, settur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vegna skipunar skrifstofustjóra á skrifstofu loftslagsmála, skipað Magnús Örn Agnesar Sigurðsson í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu loftslagsmála.

Fjórar stöður skrifstofustjóra í ráðuneytinu voru auglýstar lausar til umsóknar í október í tengslum við breytingar á skipulagi ráðuneytisins og bárust alls 65 umsóknir um embættin. Skipuritsbreytingunum sem taka gildi 1. janúar nk. er ætlað að stytta boðleiðir og skerpa á forgangsröðun og verkaskiptingu í ráðuneytinu þannig að áherslumál ríkisstjórnarinnar í umhverfis-, orku- og loftslagsmálum komist hratt til framkvæmda.

Jón Ásgeirsson hefur verið skipaður í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu orkumála og er þetta er í fyrsta skipti frá árinu 2012 sem rekin verður sérstök skrifstofa orkumála í stjórnarráðinu, en á undanförnum árum hafa orkumálin verið hluti verkefna á skrifstofum með fleiri meginhlutverk.

Jón hefur starfað sem framkvæmdastjóri stefnumótunar og Auðlindagarðs hjá HS Orku frá 2020 og situr í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Hann starfaði sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi hjá Melar Consulting ehf. 2019-2020. Áður hafði Jón starfað hjá Alusuisse, Alcan og áldeild Rio Tinto frá 1996-2018, þar af sem stjórnandi í 18 ár og framkvæmdastjóri í 14 ár á ýmsum sviðum í Evrópu og N-Ameríku. Síðastsemframkvæmdastjóri stefnumótunar aðfangakeðju og markaðsgreininga í Montreal árin 2013-2016 og sem umbreytingastjóri (staðsettur á Íslandi) 2016-2018. Þá situr Jón í stjórn Rauða krossins á Íslandi.

Jón Ásgeirsson lauk Dipl.-Ing. prófi í iðnaðarverkfræði við Háskólanum í Stuttgart 1996 og B.Sc.Hon. í efnafræði við Háskóla Íslands 1991. Hann er með diplóma í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Jón er giftur Önnu Birnu Jónasdóttur, viðskiptafræðingi hjá KPMG. Þau eiga þrjú uppkomin börn.

Björn Helgi Barkarson gegnir í dag embætti skrifstofustjóra á skrifstofu loftslags og náttúru í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Hann var skrifstofustjóri á skrifstofu sjálfbærni í matvælaráðuneytinu árin 2022 – 2025, eftir að hafa verið skrifstofustjóri á skrifstofu landgæða í umhverfis- og auðlindaráðuneyti árið 2021. Björn Helgi hóf störf í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu árið 2013 sem sérfræðingur og var staðgengill skrifstofustjóra á sömu skrifstofu. Áður hafði Björn Helgi starfað sem sérfræðingur og verkefnisstjóri á umhverfis- og skipulagssviði hjá VSÓ ráðgjöf ehf. árin 2007 – 2013 og hjá Landgræðslu ríkisins árin 1995- 2007, fyrst sem sérfræðingur og síðan sem sviðsstjóri landverndarsviðs .

Björn Helgi lauk M.Sc. gráðu í umhverfisfræði við Háskóla Íslands 2002, B.Sc. gráðu frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri 1993 og búfræðiprófi frá Hólaskóla 1990. Hann er með diplóma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands síðan 2017.

Björn Helgi er giftur Ólöfu Ásdísi Ólafsdóttur hjúkrunarfræðingi og saman eiga þau þrjú börn

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir gegnir í dag embætti skrifstofustjóra á skrifstofu umhverfis og orku í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og er jafnframt staðgengill ráðuneytisstjóra. Hún gegndi embætti skrifstofustjóra skrifstofu stefnumótunar og innleiðingar í ráðuneytinu á árunum 2024 – 2025, eftir að hafa gegnt embætti yfirlögfræðings ráðuneytisins frá 2022. Steinunn Fjóla hóf störf í umhverfisráðuneytinu árið 2008, þá sem lögfræðingur á skrifstofu laga og stjórnsýslu, ásamt því að vera staðgengill skrifstofustjóra. 2013 tók hún við embætti skrifstofustjóra á skrifstofu umhverfis og skipulags í þáverandi umhverfis- og auðlindaráðuneyti og sinnti því til ársins 2022. Steinunn Fjóla starfaði sem fulltrúi og staðgengill sýslumanns hjá Sýslumanninum á Selfossi 2000- 2008. Steinunn Fjóla starfaði enn fremur sem lögfræðingur á innheimtusviði Íbúðalánasjóðs árin 1999 -2000 og sem fasteignasali hjá Lögmönnum Suðurlandi 1993 - 1994.

Steinunn Fjóla lauk embættisprófi í lögfræði við Háskóla Íslands árið 1999. Hún lauk námi til öflunar réttinda til að vera héraðsdómslögmaður frá Lögmannafélagi Íslands 2007.

Steinunn Fjóla er gift Erni Einarssyni framkvæmdastjóra og saman eiga þau tvö börn og tvö barnabörn.

Magnús Örn Agnesar Sigurðsson hefur verið teymisstjóri loftslags- og náttúruvár í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu frá árinu 2024. Hann hóf störf sem sérfræðingur á sviði loftslagsmála í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu árið 2021, síðar umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Magnús Örn starfaði sem sérfræðingur hjá Skrifstofu loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC) í Þýskalandi árin 2018 - 2020. Hann hefur sinnt fræðastörfum og stundakennslu um loftslagsbreytingar, fyrst við Rice University og síðar við Háskóla Íslands. Rannsóknir hans hafa snúið að valdsviði almannaþjóna og embættismanna við stjórnsýslu loftslagsmála með áherslu á utanumhald aðildarríkjaþinga Loftslagssamnings S.þ.

Magnús Örn lauk doktorsprófi (Ph.D) í mannfræði við Rice University 2023, M.A. í mannfræði við sama háskóla 2018, M.A. í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands 2014 og B.A. í almennri bókmenntafræði við sama háskóla 2012.

Magnús Örn er giftur Sólveigu Ástu Sigurðardóttur nýdoktor við Hugvísindasvið Háskóla Íslands og saman eiga þau tvö börn.