Speech
Kristrún Frostadóttir  ·  2026-07-30 00:00

30 December 2025Mál nr. 41/2025. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 17. desember 2025í máli nr. 41/2025:Ljóstvistar ehf.gegnReykjavíkurborg,Páveri ehf. ogRafvirkja og Pípara fyrir þig ehf.

LykilorðSjálfkrafa stöðvun samningsgerðar.

ÚtdrátturKærunefnd útboðsmála hafnaði kröfu varnaraðila, R, um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 8. september 2025 kærði Ljóstvistar ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Reykjavíkurborgar (hér eftir „varnaraðili“) á rammasamningi á þjónustu rafverktaka fyrir götulýsingar- og umferðarljósakerfi Reykjavíkurborgar nr. 16165.

Kærandi krefst þess að ákvörðun varnaraðila um að ganga til samninga við Rafvirkja og Pípara fyrir þig ehf. og Pávers ehf. í fyrsta hluta útboðsins verði ógild. Þá krefst kærandi einnig málskostnaðar úr hendi varnaraðila.

Varnaraðili krefst þess í greinargerð sinni 26. september 2025 að öllum kröfum kæranda verði hafnað og að kæranda verði gert að greiða málskostnað í ríkissjóð. Varnaraðili krefst þess jafnframt að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt hið fyrsta.

Af greinargerð Pávers ehf. 19. september 2025 verður ráðið að þess sé krafist að kröfum kæranda verði hafnað. Hið sama verður ráðið af greinargerð Rafvirkja og Pípara fyrir þig ehf. 21. september 2025.

Kærunefnd útboðsmála sendi erindi til kæranda 18. september 2025 og óskaði eftir upplýsingum um hvort það væri réttur skilningur að kæran varði aðeins fyrri hluta útboðsins, þ.e. götulýsingarkerfið, og ekki seinni hluta þess. Kærandi svaraði erindi kærunefndarinnar þann sama dag og staðfesti að kæran varðaði aðeins fyrri hluta útboðsins.

Í þessum hluta málsins verður tekin afstaða til fyrrgreindra krafna varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

Hið kærða útboð var auglýst í júlí 2025 og var óskað eftir tilboðum í tímaverð og einingaverð vegna tilfallandi vinnu rafiðnaðarmanna við annars vegar götulýsingarkerfi og hins vegar umferðarljósakerfi Reykjavíkurborgar, sbr. grein 0.1 í útboðsgögnum. Væri bjóðendum jafnframt heimilt að bjóða í annan hlutann eingöngu eða í báða. Verkefnið fælist m.a. í reglubundnu eftirliti, bilanavakt, bilanaleit, viðgerðum á jarðstrengjum, vinnu í götuskápum, vinnu við ljósastaura og götuljós, skipta um lampa og perur, skipta um staura eftir tjón, tengja og setja upp ljósbúnað. Um væri að ræða almennt útboð á rammasamningi til eins árs með möguleika á að framlengja þrisvar sinnum um eitt ár í senn.

Í grein 0.4 útboðsgagna komu fram kröfur um hæfi bjóðenda og tekið fram að um lágmarkskröfur um hæfi væri að ræða til að komast inn í rammasamninginn. Bjóðandi þyrfti að fylla út sjálfsmat um hæfi og skila inn viðeigandi upplýsingum sem sýndu fram á að hæfið væri uppfyllt. Í grein 0.4.3.2 var fjallað um kröfur um hæfi vegna tæknilegrar og faglegrar getu fyrir hluta I í útboðinu, þ.e. götulýsingarkerfið. Þar var gerð sú krafa að bjóðandi skyldi á síðustu þremur árum hafa hið minnsta sex mánaða samfellda reynslu af almennri þjónustu við ljósastaura með körfubíl; bilanaleit í götuljósastreng undir jarðvegsyfirborði með bilanaleitarbúnaði, t.d. höggspenni; viðbragði og úrlausn vegna tjóna á ljósastaurum og tryggja öryggi með að gera götuljós spennulaust og saga niður ljósastaur; og gröfuvinnu og viðgerðum eftir bilun eða tjón, grafa niður á bilaðan streng og gera við eða reisa nýjan ljósastaur eftir tjón.

Í grein 0.5, sem fjallaði um fylgigögn með tilboði, kom fram í C. lið að bjóðendur skyldu skila með tilboði sínu stuttri greinargerð þar sem hann staðfesti að hann uppfylli sérhverja af þeim fjórum kröfum um reynslu sem tilgreindar séu og lýsi þeim verkefnum sem hann hafi unnið og fyrir hvaða aðila.

Þá var tekið fram í grein 0.8.1, sem fjallaði um valforsendur vegna hluta I, að samið yrði við alla bjóðendur sem legðu fram tilboð samkvæmt valforsendum og uppfylltu hæfiskröfur. Tilboð bjóðenda teldist óaðgengilegt ef bjóðandi byði hærra verð en kostnaðaráætlun varnaraðila geri ráð fyrir, en varnaraðili áskilji sér þó rétt til að taka tilboði sem væri hærra en kostnaðaráætlun eftir því sem við ætti. Þá áskildi varnaraðili sér rétt til að kalla eftir skýringum, upplýsingum eða boða til skýringarfundar með bjóðanda, ef gögn sem bjóðandi legði fram virtust ófullkomin eða ef tiltekin skjöl vanti.

Tilboð voru opnuð hinn 14. ágúst 2025 og bárust tilboð frá fimm fyrirtækjum í hluta I. Kærandi átti lægsta tilboðið í þann hluta, en tilboð hans nam 76,85% af kostnaðaráætlun. Rafvirki og Pípari fyrir þig ehf. og Pávers ehf. áttu hæsta og næst hæsta tilboðin en þau námu annars vegar 119,98% og hins vegar 148,13% af kostnaðaráætlun. Hinn 28. ágúst 2025 ákvað innkaupa- og framkvæmdaráð varnaraðila að semja við alla bjóðendur í hluta I og var tilkynning þess efnis send bjóðendum þann sama dag. Kærandi óskaði eftir rökstuðningi 28. ágúst 2025 fyrir þeirri ákvörðun varnaraðila að semja við þá aðila sem hefðu boðið yfir kostnaðaráætlun og svaraði varnaraðili beiðni kæranda þann 29. ágúst 2025.

Kærandi telur ótækt að semja við Pávers ehf. og Rafvirkja og Pípara fyrir þig ehf. þar sem þau uppfylli ekki hæfiskröfur hins kærða útboðs auk þess þau hafi boðið umfram kostnaðaráætlun. Vísar kærandi til þess að einungis þrír aðilar hafi boðið í verkið, þ.e. hluta I, samkvæmt fjárhagslegum forsendum útboðsins, þ. á m. kærandi. Varnaraðili hafi ákveðið að semja einnig við framangreind fyrirtæki þrátt fyrir að tilboð þeirra hafi verið yfir kostnaðaráætlun, og fært fyrir því þau rök að með því telji varnaraðili að dregið sé úr áhættu við að ekki verði brugðist við bilunum tímanlega og að hæfir seljendur séu til taks.

Í grein 0.8.1 hafi komið fram að samið yrði við alla bjóðendur sem legðu fram tilboð samkvæmt valforsendum og uppfylli hæfiskröfur, en að varnaraðili áskildi sér rétt til þess að taka tilboði sem væri hærra en kostnaðaráætlun eftir því sem við ætti. Jafnframt væri tekið fram að tilboð bjóðenda teldist óaðgengilegt ef bjóðandi byði hærra verð en kostnaðaráætlun varnaraðila gerði ráð fyrir. Kærandi telji að hér sé bersýnilega mótsögn í útboðsgögnum, um að annars vegar séu tilboð yfir kostnaðaráætlun óaðgengileg en samt sé heimilt að taka þeim. Þá veki athygli orðalagið um að heimilt væri að taka tilboði yfir kostnaðaráætlun eftir því sem við ætti, en kærandi telji það vera undantekningarheimild sem ætti t.d. við ef flest eða öll tilboð væru umfram kostnaðaráætlun. Séu tilboð nægilegs fjölda bjóðenda undir kostnaðaráætlun útiloki það bjóðendur sem fari umfram hana. Þá verði ekki séð að rök þess efnis, að nauðsynlegt væri að semja við þá bjóðendur til þess að draga úr áhættu, standist en kærandi hafi í tvö ár sinnt útboðsvinnunni einn. Kröfunni um aukið öryggi sé náð með því að semja við tvo aðila til viðbótar til að sinna þjónustunni sem öryggisventil, verði kærandi hugsanlega ekki til taks.

Þá telji kærandi að Pávers ehf. og Rafvirki og Pípari fyrir þig ehf. ekki hafa sex mánaða samfellda reynslu af sambærilegri þjónustu. Vísar kærandi til þess að hann hafi síðan árið 2023 verið með samning um þessa þjónustu sem nú sé boðin út. Samningurinn hafi ekki lokið fyrr en 30. apríl 2025. Verði því ekki séð að þessir bjóðendur geti uppfyllt þessa hæfiskröfu, nema í því felist viðurkenning varnaraðila á að hann hafi brotið á rétti kæranda samkvæmt framangreindum samningi.

Varnaraðili andmælir því að honum hafi verið óheimilt að taka tilboðum Pávers ehf. og Rafvirkja og Pípara fyrir þig ehf. sökum þess að tilboð þeirra hafi verið yfir kostnaðaráætlun. Vísar varnaraðili í þeim efnum til þess að samkvæmt 2. mgr. 82. gr. laga nr. 120/2016, eins og ákvæðinu hafi verið breytt með 6. gr. laga nr. 37/2019, teljist tilboð óaðgengilegt ef bjóðandi bjóði hærra verð en fyrir fram ákveðin fjárhagsáætlun kaupanda geri ráð fyrir, nema kaupandi hafi áskilið sér rétt til að taka slíku tilboði. Í athugasemdum með 6. gr. laga nr. 37/2019 komi meðal annars fram að mikilvægt sé að kaupandi hafi ákveðið svigrúm til að meta hvort hafna eigi öllum tilboðum sem séu yfir fjárhagsáætlun eða óska eftir frekara fjármagni til að standa undir innkaupum. Jafnframt sé tekið fram að í sumum tilvikum geti verið hagkvæmara fyrir kaupanda að taka tilboði sem sé yfir fjárhagsáætlun fremur en að hefja nýtt innkaupaferli með tilheyrandi kostnaði og töfum.

Varnaraðili telji að sé slíkur áskilnaður gerður í útboðsgögnum sé réttur kaupanda til að nýta sér slíka heimild ekki sérstökum takmörkunum háð að því undanskildu að kaupandi þurfi að gæta jafnræðis, gagnsæis og meðalhófs í samræmi við meginreglur 15. gr. laga nr. 120/2016. Varnaraðili hafi áskilið sér rétt til þess að taka tilboðum yfir kostnaðaráætlun í útboðsgögnum og á grundvelli þess áskilnaðar hafi varnaraðili ákveðið samþykkt öll tilboð í hluta I, þ.m.t. þau tilboð sem hafi verið yfir kostnaðaráætlun. Þá hafi varnaraðili vísað til þess að ástæður þess að ákveðið hafi verið að samþykkja öll tilboð í hluta I hafi verið málefnalegar, þ.e. að auka samkeppni í væntanlegum örútboðum, þó svo að varnaraðila hafi ekki verið skylt að tilgreina sérstakar ástæður þar um.

Varnaraðili telur jafnframt að Pávers ehf. og Rafvirki og Pípari fyrir þig ehf. hafi uppfyllt hæfiskröfur greinar 0.4.3.2 í útboðsgögnum, og að auki andmæli varnaraðili þeirri staðhæfingu kæranda að kærandi hafi einn sinnt fyrir varnaraðila þeirri þjónustu sem nú sé boðin út. Hið rétta sé að í gildi hafi verið samningur um árabil milli varnaraðila og Orku náttúrunnar ohf. um götuljós, allt til loka mars 2025. Samkvæmt samningnum hafi Orka náttúrunnar ohf. séð um rekstur og viðhald götulýsingar í Reykjavík, og kærandi hafi sinnt þjónustu við Orku náttúrunnar ohf. meðal annars um þau atriði sem lýst sé í fyrrgreindum samningi. Á hinn bóginn hafi kærandi ekki sinnt verkefnum samkvæmt þeim samningi að öllu leyti og því hafi varnaraðili oftsinnis þurft að leita til annarra fyrirtækja vegna þjónustu við götuljós, þ.m.t. Rafvirkja og Pípara fyrir þig ehf. Að auki hafi önnur fyrirtæki sinnt annarri sambærilegri þjónustu við varnaraðila og þeirri er grein 0.4.3.2 taki til, svo sem þjónustu við ljós í undirgöngum og jólaskreytingar.

Að auki bendir varnaraðili á að ekki hafi verið gerð krafa um það í útboðsgögnum að reynsla bjóðenda tæki eingöngu til þjónustu við varnaraðila, heldur megi slík reynsla ná til þjónustu og verkefna fyrir hvern sem er, sem og reynslu af eigin verkefnum og framkvæmdum. Það geti enda vart talist málefnalegt að einskorða kröfuna við reynslu af þjónustu við varnaraðila. Kærunefnd útboðsmála hafi í framkvæmd sinni lagt áherslu á að hæfni og reynsluskilyrði í útboðsgögnum beri ekki að túlka með íþyngjandi hætti fyrir bjóðendur eða þannig að sú reynsla sem bjóðendur vísi til þurfi að ná að öllu leyti til sömu þátta og samningur lúti að, sbr. til dæmis ákvörðun nefndarinnar í máli nr. 33/2021 og úrskurð í máli nr. 17/2019. Í tilboðum sínum hafi Pávers ehf. og Rafvirki og Pípari fyrir þig ehf. gert ítarlega grein fyrir því hvernig þau uppfylltu hæfniskröfur útboðslýsingar. Af tilboðum þeirra sem og vitneskju varnaraðila um reynslu þeirra hafi varnaraðili metið það svo að þau uppfylltu kröfur greinar 0.4.3.2 í útboðsgögnum, sbr. til hliðsjónar 8. mgr. 73. gr. laga nr. 120/2016. Þannig hafi Rafvirki og Pípari fyrir þig ehf. lýst því að félagið og starfsfólk þess hefði umfangsmikla reynslu af þjónustu og viðgerðum á ljósastaurum fyrir bæði varnaraðila og Orkuveitu Reykjavíkur. Til þeirrar reynslu hafi starfsfólk varnaraðila þekkt og metið hana fullnægjandi. Varnaraðili taki þó fram að félagið hafi viðurkennt að hafa ekki nýlega reynslu af gröfuvinnu og viðgerðum eftir bilun eða tjón, grafa niður á bilaðan streng og gera við eða reisa nýjan ljósastaur eftir tjón. Hins vegar taki þessi liður greinarinnar einnig til reynslu af því að reisa nýjan ljósastaur eftir tjón sem bjóðandi megi búa yfir í stað reynslu af gröfuvinnu. Fyrirtækið hafi slíka reynslu. Pávers ehf. hafi lagt fram upplýsingar um víðtæka og nýlega reynslu starfsmanna fyrirtækisins, meðal annars rekstur á eigin ljósastaurum, þjónustu við ljósastaura fyrir dótturfélög Orkuveitu Reykjavíkur og rafverktöku fyrir jarðvinnuverktaka, þ.m.t. almennri þjónustu, bilanaleit, viðbragði og úrlausn vegna tjóna og gröfuvinnu og viðgerðum. Því telji varnaraðili að bæði fyrirtækin hafi uppfyllt kröfur um hæfi samkvæmt grein 0.4.3.2 í útboðsgögnum.

Pávers ehf. kveður sig hafa boðið það verð sem það treysti sér til að standa við og það sé ekki hlutverk fyrirtækisins að svara hvort texti útboðsgagna um að heimilt sé að versla umfram kostnaðaráætlun standist skoðun eða ekki. Að því er varðar hæfniskröfur útboðsgagna telur Pávers ehf. staðhæfingu kæranda, um að félagið uppfylli þær kröfur ekki, vera ósanngjarna. Vísar Pávers ehf. til þess að báðir eigendur félagsins hafi unnið hjá samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur til vors 2023, eftir 15 og 19 ára starf, og vinna enn mikið fyrir Veitur ohf. sem verktakar. Annar eigenda hafi m.a. stýrt sem verktaki fyrir hönd Veitna ohf. verkefninu um að koma götuljósum út úr dreifistöðvum og í um 300 skápa, og hinn eiganda hafi komið að því verkefni sem óháður hönnuður og ráðgjafi varnaraðila. Þá hafi Pávers ehf. haft frumkvæði og hugmyndavinnu að því að láta teikna inn og skrá rafrænt götuljósaeignir Reykjavíkurborgar í samstarfi við annað fyrirtæki. Þá sé sú tilraun, að nota snjallmæla Veitna ohf. til að stýra götuljósum, hugarfóstur og hugmynd Pávers ehf. Eigendur fyrirtækisins séu reynslumiklir í allri vinnu við rekstur rafveitna og rafdreifikerfa, þ.m.t. götuljósa sem hafi verið samofin rafdreifikerfi Reykjavíkur í 100 ár. Þá vísar Pávers ehf. til þess að frá 1. maí til 1. september 2025 séu fjórir mánuðir sem telji. Það séu margir aðrir en varnaraðili sem eigi og reki götuljósakerfi, Pávers ehf. hafi komið að hinum ýmsum verkefnum tengdum götuljósum bæði fyrir varnaraðila og aðra aðila. Pávers ehf. eigi og reki ljósastaura og hleðslustöðvar, hafi verið rafverktaki fyrir verktaka í nýframkvæmdum við uppsetningu staura og ljósa, og hafi starfsmaður fyrirtækisins gengið bakvaktir í umferðar- og götuljósum frá áramótum.

Rafvirki og Pípari fyrir þig ehf. benda á að fyrirtækið hafi boðið það verð sem það teldi sig geta staðið við og það sé ekki á ábyrgð fyrirtækisins að leggja mat á túlkun útboðsgagna um viðskipti umfram kostnaðaráætlun. Varnaraðili beri ábyrgð á því og hafi samþykkt fyrirtækið til þátttöku í rammasamningnum. Samningsfrelsi sé meginregla íslensks samningaréttar. Fyrirtækið andmælir jafnframt að orðalag útboðsgagna sé óljóst og að í því felist mótsögn, en samkvæmt orðanna hljóðan sé verkkaupi að halda opnu að semja við aðila sem gert hafi tilboð yfir kostnaðaráætlun. Að auki vísar fyrirtækið til þess að ef fyrirtæki séu útilokuð frá þátttöku í útboðum sé vandséð að þau geti byggt upp enn frekari reynslu á viðkomandi sviði. Það sé hlutverk og hagsmunir verkkaupa að ákveða hvort viðkomandi bjóðandi uppfylli hæfisskilyrði. Þátttaka í rammasamningi styrki grundvöll fyrirtækja til að nýta reynslu sína og bjóða enn hagstæðara verð í framtíðarútboðum. Þá andmælir Rafvirki og Pípari fyrir þig ehf. staðhæfingu kæranda að fyrirtækið uppfylli ekki hæfisskilyrði útboðsgagna, og telur þá staðhæfingu ranga og ósanngjarna. Fyrirtækið og starfsmenn þess hafi sinnt sambærilegum verkefnum við viðhald götulýsingarkerfa fyrir bæði einkaaðila og opinbera aðila og hafi þannig sýnt fram á reynslu og hæfni í beinum sams konar verkefnum. Vísar fyrirtækið í þessum efnum til menntunar og starfsferils annars eiganda þess þessu til stuðnings, og tekur fram að bæði eigendur og starfsmenn fyrirtækisins hafi unnið að fjölbreyttum verkefnum tengdum rekstri rafdreifikerfa og götulýsingar, m.a. við uppsetningu og þjónustu ljósastaura í nýframkvæmdum, stór auglýsingaskilti, reglubundið eftirlit, bilanaleita í götuskápum og jarðstrengjum, viðgerðum eftir tjón, endurnýjun lampa og peru, auk tenginga og uppsetningar á ljósabúnaði. Þá hafi félagið frá hausti 2024 tekið þátt í bakvöktum fyrir varnaraðila í hitakerfum þar sem bæði raf- og pípulagnir tengist.

Kæra málsins hafði í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar samkvæmt 1. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016. Í 1. mgr. 107. gr. laganna kemur fram að ef ákvörðun um val tilboðs er kærð innan lögboðins biðtíma samkvæmt 86. gr. laganna sé gerð samnings óheimil þar til kærunefnd útboðsmála hefur endanlega leyst úr kærunni. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar getur kærunefnd, hvort heldur að kröfu varnaraðila eða að eigin frumkvæði, ákveðið að aflétta banni við samningsgerð, en við slíka ákvörðun gilda ákvæði 110. gr. laganna eftir því sem við á. Í því felst að einungis á að viðhalda stöðvun hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögum um opinber innkaup eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.

Kærandi byggir annars vegar á því að varnaraðila hafi verið óheimilt að taka tilboðum Pávers ehf. og Rafvirkja og Pípara fyrir þig ehf. annars vegar þar sem tilboð þeirra félaga hafi verið yfir kostnaðaráætlun og hins vegar að tilboð félaganna uppfylli ekki kröfur útboðsgagna um reynslu af sambærilegri þjónustu.

Í 82. gr. laga nr. 120/2016 er fjallað um ógild og óaðgengileg tilboð. Þar kemur meðal annars fram í 2. mgr. að tilboð teljist óaðgengilegt er bjóðandi býður hærra verð en fyrir fram ákveðin fjárhagsáætlun kaupanda gerir ráð fyrir, nema kaupandi hafi áskilið sér rétt til að taka slíku tilboði. Í grein 0.8.1 í útboðslýsingu kom fram áskilnaður af hálfu varnaraðila til að taka tilboði sem væri hærra en kostnaðaráætlun eftir því sem við ætti. Að mati kærunefndar útboðsmála verður að telja að þessi áskilnaður útboðsgagna sé í samræmi við 2. mgr. 82. gr. laga nr. 120/2016. Verður því sjónarmiðum kæranda í þessa veru hafnað.

Samkvæmt c. lið 1. mgr. 69. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup er kaupanda heimilt að setja skilyrði fyrir þátttöku fyrirtækja á grundvelli tæknilegrar og faglegrar getu. Í 1. mgr. 72. gr. segir að tæknileg og fagleg geta fyrirtækis skuli vera það trygg að það geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart kaupanda. Í því skyni sé kaupanda heimilt að setja skilyrði um að fyrirtæki hafi nauðsynlegan mannauð, tækniúrræði og reynslu til að framkvæma samning í samræmi við viðeigandi gæðastaðal. Þá segir í 2. mgr. 72. gr. að kaupandi geti krafist þess að fyrirtæki hafi nægilega reynslu og sýni fram á það með viðeigandi gögnum í tengslum við samninga sem fyrirtækið hafi áður framkvæmt.

Í grein 0.4.3.2 komu fram kröfur til tæknilegrar og faglegrar getu í hluta 1 í hinu kærða útboði. Þar segir að bjóðandi skuli á síðustu þremur árum hafa hið minnsta sex mánaða samfellda reynslu af almennri þjónustu við ljósastaura með körfubíl; bilanaleit í götuljósastreng undir jarðvegsyfirborði með bilanaleitarbúnaði (t.d. höggspenni); viðbragð og úrlausn vegna tjóna á ljósastaurum og tryggja öryggi með að gera götuljós spennulaust og saga niður ljósastaur; og gröfuvinnu og viðgerðum eftir bilun eða tjón, grafa niður á bilaðan streng og gera við eða reisa nýjan ljósastaur eftir tjón. Þá kemur fram í grein 0.5 í útboðsgögnum að bjóðandi skuli skila með tilboði stuttri greinargerð þar sem hann staðfestir að hann uppfylli sérhverja af þeim fjórum kröfum um reynslu sem tilgreindar hafi verið og jafnframt að bjóðandi lýsi þeim verkefnum sem hann hafi unnið og fyrir hvaða aðila. Af orðalagi greinarinnar verður að ráðið að bjóðendur verði að uppfylla öll þessi fjögur skilyrði til þess að geta komið til greina við val á tilboðum.

Það er meginregla útboðsréttar að bjóðendur bera ábyrgð á tilboðum sínum og að þeim sé skilað í samræmi við kröfur útboðsgagna, eftir atvikum eins og þeim hefur verið breytt eða þau nánar skýrð við meðferð útboðsins, sbr. úrskurð kærunefndar útboðsmála 20. september 2022 í máli nr. 15/2022.

Með tilboði Rafvirkja og Pípara fyrir þig ehf. fylgdi skjal um hæfi vegna tæknilegrar og faglegrar getu þeirra fyrir hluta 1. Þar er því lýst hvernig félagið telur sig uppfylla hvert og eitt skilyrði greinar 0.4.3.2. Að því er varðar skilyrðið um að bjóðandi hefði reynslu af gröfuvinnu og viðgerðum eftir bilun eða tjón, grafa niður á bilaðan streng og gera við eða reisa nýjan ljósastaur eftir tjón, er tekið fram að félagið „hefur ekki þurft að sinna slíkum verkum undanfarið“ en að félagið hefði reynsluna innanhúss. Er þar nefndur tiltekinn starfsmaður sem mun hafa slíka reynslu, en jafnframt er tekið fram að reynsla hans komi frá starfi hans fyrir Orkuveitu Reykjavíkur á árunum 2012-2014. Líkt og að framan greinir var gerð sú krafa í grein 0.4.3.2 að reynsla bjóðenda skyldi miðast við hið minnsta sex mánaða samfellda reynslu á síðustu þremur árum. Verður ekki séð samkvæmt gögnum málsins hvernig félagið uppfylli þá kröfu að hafa reynslu af gröfuvinnu og viðgerðum eftir bilun eða tjón, sbr. lið 4. í grein 0.4.3.2. Þá er reynsla umrædds starfsmanns utan þess tíma sem krafist var í greininni. Af þessum sökum verður að telja, að virtum þeim gögnum sem nú liggja fyrir, að tilboð Rafvirkja og Pípara fyrir þig ehf. hafi ekki uppfyllt framangreindar lágmarkskröfur og virðist því, á þessu stigi málsins, hafa verið ógilt í skilningi 82. gr. laga nr. 120/2016.

Að því er varðar tilboð Pávers ehf. þá fylgdi með tilboðinu yfirlýsing um reynslu og hæfi starfsmanna félagsins. Þar er m.a. vísað til verkefnis Pávers ehf. í umferðarljósum og götuljósum og kemur þar meðal annars fram að félagið hafi verið rafverktaki jarðvinnuverktaka í útboðsverkefnum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og séð um alla vinnu við götuljós í þeim verkum. Þá hafi félagið hannað, lagt og rekið götuljósakerfi, sónað strengi, reist og tekið niður staura, tengt og sett upp ljósabúnað í bæði rekstrar- og nýframkvæmdum hjá Reykjavíkurborg og hjá Veitum ohf. Að auki hafi félagið stýrt yfirfærslu á götuljósum úr dreifistöðvum Veitna ohf. í núverandi götulýsingarskápa í sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og hjá Vegagerðinni og Faxaflóahöfnum. Að öðru leyti er ekki vísað til þess í fylgiskjali þessu, né öðrum fylgiskjölum með tilboði Pávers ehf., hvernig félagið uppfyllir þau fjögur lágmarksskilyrði um reynslu samkvæmt grein 0.4.3.2 í útboðsgögnum. Þar á meðal eru engar upplýsingar um hvort félagið hafi sinnt almennri þjónustu við ljósastaura með körfubíl, viðbragða og úrlausna vegna tjóna á ljósastaurum, né gröfuvinnu og viðgerðir eftir bilanir eða tjón.

Að mati kærunefndar útboðsmála verður ekki séð, af fyrirliggjandi gögnum, hvernig tilboð Pávers ehf. hafi uppfyllt kröfu greinar 0.4.3.2 í útboðsgögnum. Af þessum sökum virðist Pávers ehf. ekki hafa sýnt fram að félagið hafi uppfyllt allar þær kröfur sem þar voru gerðar og virðist því tilboð félagsins, á þessu stigi málsins, hafa verið ógilt að þessu leyti, sbr. 82. gr. laga nr. 120/2016.

Samkvæmt framangreindu verður að telja, eins og mál þetta liggur fyrir á þessu stigi, að verulegar líkur hafi verið leiddar að broti gegn lögum nr. 120/2016 sem leitt geti til ógildingar á ákvörðun varnaraðila um val á tilboðum Rafvirkja og Pípara fyrir þig ehf. og Pávers ehf., sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016. Kröfu varnaraðila um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar, sem komst á með kæru í máli þessu, er því hafnað.

Kröfu varnaraðila, Reykjavíkurborgar, um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar vegna rammasamningsútboðs nr. 16165 um þjónustu rafverktaka fyrir götulýsingar- og umferðarljósakerfi Reykjavíkurborgar, er hafnað.