Speech
Kristrún Frostadóttir  ·  2026-07-30 00:00

30 December 2025Heilbrigðisráðuneytið styrkir innleiðingu Solihull – Togetherness á ÍslandiHeilbrigðisráðuneytið hefur veitt Geðverndarfélagi Íslands 8 milljóna króna styrk til að styðja við þýðingu og aðgengi að fræðslu- og námskeiðsefni úr hugmyndafræðinni Solihull - Togetherness, sem miðar að því að efla geðheilbrigði, tengslamyndun og farsæld barna og fjölskyldna með snemmtækum og forvarnamiðuðum aðgerðum.

Heilbrigðisráðuneytið hefur veitt Geðverndarfélagi Íslands 8 milljóna króna styrk til að styðja við þýðingu og aðgengi að fræðslu- og námskeiðsefni úr hugmyndafræðinni Solihull - Togetherness, sem miðar að því að efla geðheilbrigði, tengslamyndun og farsæld barna og fjölskyldna með snemmtækum og forvarnamiðuðum aðgerðum.

Togetherness (áður Solihull Approach) er alþjóðlega viðurkennd hugmyndafræði sem á rætur sínar að rekja til breska heilbrigðiskerfisins (NHS) í Birmingham. Hún byggir á samþættingu þekkingar á heilastarfsemi, tengslamyndun, tilfinningalífi og áföllum og leggur áherslu á að styrkja samskipti, skilning og öryggi í uppeldi og þjónustu við börn og fjölskyldur.

Hugmyndafræðin nýtist í fjölbreyttum þjónustukerfum, þar á meðal í heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, skólum, snemmtækum stuðningi og foreldrafræðslu. Með henni er fagfólki og foreldrum veittur aukinn skilningur á hegðun barna, undirliggjandi þörfum og tilfinningum, sem stuðlar að minni vanlíðan og dregur úr þörf fyrir íþyngjandi inngripi síðar.

Geðverndarfélag Íslands hefur frá árinu 2017 staðið fyrir fræðslu og þjálfun fagfólks í Solihull-hugmyndafræðinni. Hingað til hafa nokkur hundruð einstaklingar úr ýmsum fagstéttum lokið grunnnámskeiði, þar á meðal ljósmæður, hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar, sálfræðingar og starfsfólk í skólum og félagsþjónustu. Boðið er upp á tveggja daga grunnnámskeið með handleiðslu, auk sérhæfðra námskeiða sem fjalla meðal annars um starfsemi heilans, tengslamyndun, áföll og stuðning við foreldra.

Á undanförnum árum hefur jafnframt verið unnið að því að gera netnáskeið Togetherness aðgengileg á íslensku í samstarfi við alþjóðlega samstarfsaðila. Námskeiðin eru ætluð foreldrum, verðandi foreldrum, ungmennum og almenningi og fjalla meðal annars um meðgöngu, fæðingu, fyrstu ár barns, tilfinningalíf, hegðun og geðheilbrigði. Stefnt er að því að alls verði 17 netnámskeið aðgengileg á íslensku, auk þýðinga á lykilbókum sem styðja við fræðsluna.

Fjárveiting heilbrigðisráðuneytisins mun nýtast til áframhaldandi þýðinga á bókum og netnámskeiðum og tryggja þannig breiðara aðgengi að efninu hér á landi. Verkefnið styður beint við geðheilbrigðisáætlun stjórnvalda, áherslur um snemmtækan stuðning, geðrækt og forvarnir, sem og markmið Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um rétt barna til heilsu og verndar.

Nánari upplýsingar um Togetherness má finna á heimasíðuGeðverndarfélagsins