Speech
Kristrún Frostadóttir  ·  2026-07-30 00:00

31 December 2025Áramótaávarp Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherraKristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti áramótaávarp sitt í kvöld þar sem hún færði landsmönnum óskir um gleðilegt nýtt ár með von um heilsu, hamingju og þjóðarheill.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti áramótaávarp sitt í kvöld þar sem hún færði landsmönnum óskir um gleðilegt nýtt ár með von um heilsu, hamingju og þjóðarheill.

Forsætisráðherra fór yfir stöðu mála og þau krefjandi verkefni sem framundan eru.

„Ísland er frábært land – en við getum alltaf gert betur. Og við eigum að stefna hærra: Halda áfram að byggja landið, hlúa betur að fólkinu okkar og tryggja öllum sem hér búa sæti við borðið – tækifæri til að tilheyra og taka þátt í samfélaginu. Það er eilífðarverkefni.“

Í ávarpinu leit forsætisráðherra einnig yfir farinn veg á viðburðarríku fyrsta starfsári ríkisstjórnarinnar.

„Margt hefur gengið vel. Margt getum við gert betur og stundum lendum við í mótvindi. En við hétum því að láta verkin tala og vera samstíga ríkisstjórn – bæði í sigri og þraut. Það hefur gefist vel.“