05 January 2026Aukinn umhverfislegur ávinningur af hreinsun skólpsJóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest reglugerð um fráveitur og skólphreinsun sem ætlað er að auka umhverfislegan ávinning af hreinsun skólps. Reglugerðin kemur í stað eldri reglugerðar frá 1999 með síðari breytingum.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest reglugerð um fráveitur og skólphreinsun sem ætlað er að auka umhverfislegan ávinning af hreinsun skólps. Reglugerðin kemur í stað eldri reglugerðar frá 1999 með síðari breytingum.
Meðal nýmæla í reglugerðinni eru m.a. að aukinn skýrleiki er gerður varðandi kröfur um eins þreps hreinsun skólps. Þéttbýli sem losa meira en 10.000 persónueiningar í sjó geta ekki lengur beitt grófhreinsun heldur eiga að hreinsa samkvæmt eins þreps hreinsistigi sem er betri hreinsun á mengunarefnum (lífrænt efni, úrgangur, örplast). Persónueining er það magn lífrænna efna sem samsvarar því sem meðal einstaklingur losar frá sér á sólarhring.
Þá eru skýrari ákvæði um skil á gögnum til að bæta yfirsýn yfir álag frá skólpi, svo tryggja megi betra eftirlit með hreinsun þess. Einnig er ábyrgð leyfishafa fyrir iðnaðarstarfsemi um hreinsun frárennslis gerð skýrari. Þá er ferli fyrir skilgreiningu viðtaka sem teljast síður viðkvæmir einfaldað. Allir viðtakar þar sem þéttbýli losa milli 10.000- 30.000 persónueiningar í sjó eru skilgreindir síður viðkvæmir viðtakar, nema gögn um ástand strandsjávar sýni fram á annað. Þannig þurfa einungis stærri þéttbýli að skila inn slíkri beiðni. Með reglugerðinni er enn fremur hvatt til notkunar á blágrænum ofanvatnslausnum til að draga úr álagi á fráveitukerfi.
Töluverð óvissa ríkti um þær kröfur sem fyrri reglugerð gerði gagnvart sveitarfélögum, atvinnulífi, og eftirlitsaðilum og er breytingunum nú ætlað tryggja rétta innleiðingu Evróputilskipunar frá 1991 og tryggja um leið fumlausa og árangursríka stjórnsýslu og umhverfisvernd.
Reglugerð um fráveitur og skólphreinsun