18 June 2026Auglýst eftir tilnefningum til Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti 2026Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti sem afhent er í tengslum við Dag íslenskrar náttúru.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti sem afhent er í tengslum við Dag íslenskrar náttúru.
Viðurkenningin verður veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar.
Sigríður Tómasdóttir, fæddist 24. febrúar 1871 í Brattholti. Sigríður var baráttukona og náttúruverndarsinni sem lagði mikið á sig í baráttu gegn virkjun Gullfoss. Hún var því brautryðjandi á sviði náttúruverndarmála hér á landi og hefur æ síðan verið íslenskum náttúruverndarsinnum fyrirmynd.
Tilnefningar með rökstuðningi sendist umhverfis- og orku- og loftslagsráðuneytinu á netfangið[email protected]í síðasta lagi 21. ágúst 2026.