Speech
Kristrún Frostadóttir  ·  2026-07-01 00:00

18 June 2026Skilyrði námsleyfa hert og málsmeðferð einfölduðAlþingi samþykkti í dag frumvarp dómsmálaráðherra þar sem skilyrði fyrir námsleyfi eru hert og framkvæmdin færð nær því sem tíðkast á Norðurlöndum.

Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga var samþykkt á Alþingi í dag.  Með breytingunni eru skilyrði fyrir námsleyfi hert og framkvæmdin færð nær því sem tíðkast hefur á Norðurlöndum og grunnur lagður að heildarendurskoðun á fyrirkomulagi atvinnu- og dvalarleyfa.

Tölfræði hefur sýnt óeðlilega ásókn í námsmannaleyfi á stuttum tíma. Þá leiddu niðurstöður starfshóps dómsmálaráðherra sem falið var að yfirfara gildandi reglur og framkvæmd dvalarleyfa í ljós að íslenskt regluverk hefur að ýmsu leyti verið rýmra en regluverk annarra Norðurlanda, meðal annars þegar kemur að dvalarleyfum námsmanna.

Helstu breytingar eru að sýna þarf fram á fullnægjandi námsárangur reglulega, fjölskyldusameining bara bundin við maka og börn eins og tíðkast víða erlendis, dvalarleyfi til atvinnuleitar eftir útskrift stytt í 18 mánuði og diplómu-nám veitir ekki lengur réttindi til atvinnuþátttöku eða fjölskyldusameiningar.

„Hér erum við að herða skilyrði til að stemma stigu við misnotkun á dvalarleyfiskerfinu í gegnum námsmannaleyfi. Erlendir ríkisborgara eru svo sannarlega áfram velkomnir til Íslands til þess að mennta sig. Það er kýrskýrt. Í haust mun ég svo leggja fram heildarendurskoðun á dvalarleyfiskafla útlendingalaga,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.

Frumvarpið kveður einnig á um tilfærslu afgreiðslu og útgáfu atvinnu-og dvalarleyfa til Útlendingastofnunar. Með því er umsóknarferli sett í einn farveg til einföldunar fyrir umsækjendur.

Breytingin mun hraða málsmeðferð en Útlendingastofnun er nú þegar með á sinni könnu dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku.

Núverandi fyrirkomulag, þar sem afgreiðsla slíkra mála er á forræði tveggja stofnana, er ólíkt því sem þekkist á öðrum Norðurlöndum og hefur dregið úr yfirsýn, eftirliti og möguleikum til skilvirkari málsmeðferðar.

„Þetta er mikið framfaraskref og mikilvægur liður í vinnu við umbætur á dvalarleyfiskerfinu í heild. Að sækja um atvinnu- og dvalarleyfi hefur verið alltof flókið fyrir einstaklinga og atvinnulífið. Hérna erum við að fækka viðkomustöðum, símtölum og erindum og spara þannig sporin,“ segir dómsmálaráðherra.