Speech
Kristrún Frostadóttir
·
2026-07-01 00:00
18 June 2026Annar fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2026Annar fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2026 fór fram fimmtudaginn 18. júní.
Annar fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2026 fór fram fimmtudaginn 18. júní.
Á fundinum var farið yfir stöðu og horfur í fjármálakerfinu og hagkerfinu og helstu áhættuþættir ræddir. Sérstaklega var fjallað um þróun og horfur á fasteigna- og byggingamarkaði og gjaldeyrismarkaði. Vaxandi áhætta í rekstri fjármálainnviða var til umræðu og viðbrögð Seðlabankans við henni. Á fundinum var gerð grein fyrir störfum skilavalds frá síðasta fundi ráðsins.