19 June 2026Fundað með TikTok um aldurstakmark að samfélagsmiðlumInga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, átti í gær fund með fulltrúum TikTok um hækkun aldurstakmarks fyrir notkun samfélagsmiðla á Íslandi. Samtalið er liður í vinnu ráðuneytisins við að setja í lög aldurstakmörk fyrir notkun barna á samfélagsmiðlum.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, átti í gær fund með fulltrúum TikTok um hækkun aldurstakmarks fyrir notkun samfélagsmiðla á Íslandi. Samtalið er liður í vinnu ráðuneytisins við að setja í lög aldurstakmörk fyrir notkun barna á samfélagsmiðlum.
Á fundinum voru ræddar þær hættur sem börn og ungmenni standa frammi fyrir í stafrænum heimi og hvernig hægt sé að verja þau gegn neikvæðum áhrifum samfélagsmiðla.
Fulltrúar TikTok sögðu á fundinum að TikTok legðist ekki gegn slíkum hugmyndum og væri tilbúið að vinna með íslenskum stjórnvöldum þegar kæmi að hugsanlegri hækkun aldurstakmarka fyrir notkun barna á samfélagsmiðlum.
Ráðherra héltvinnustofu með börnum og ungmennum í aprílí því skyni að móta með þeim reglur um notkun samfélagsmiðla hérlendis. Á þeirri vinnustofu var einnig haft samráð við börn og ungmenni um samræmdar reglur um símafrí í skólum, en nýverið varreglugerð um slíkt send til umsagnar.
Mennta- og barnamálaráðherra mun á næstunni kynna frekari útfærslu á hækkun aldurstakmarka fyrir notkun samfélagsmiðla.