19 June 2026Innviðaráðherra eykur aflaheimildir til strandveiðaEyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur aukið aflaheimildir til strandveiða á yfirstandandi strandveiðitímabili.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur aukið aflaheimildir til strandveiða á yfirstandandi strandveiðitímabili. Það gerði ráðherra í gær með því að undirrita breytingu áreglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla(nr. 1270/2025).
Með reglugerðinni er aflamark þorsks til strandveiða hækkað um 2.700 tonn á tímabilinu eða úr 10.650 tonnum í 13.350 tonn. Með þessari aukningu nemur heildarafli sem úthlutað verður til strandveiða upp úr sjó 14.700 tonnum.
„Það er ánægjuefni að strandveiðivertíðin í ár verði sú allra stærsta frá upphafi, þrátt fyrir samdrátt í heildarafla síðustu ár. Það er mikilvægt að efla strandveiðar, enda tryggja þær beint aðgengi að þjóðarauðlindinni, styðja við nýliðun í greininni og skapa mikil verðmæti,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.
Breytingin er gerð á grundvelli jöfnunarheimildar sem samþykkt var samkvæmt lögum nr. 46/2026, um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sem heimilar ráðstöfun aukins aflamagns til strandveiða til viðbótar við áður úthlutað aflamagn á fiskveiðiárinu.