Speech
Kristrún Frostadóttir  ·  2026-07-01 00:00

19 June 2026Utanríkisráðherra ræddi öryggi á norðurslóðum á öryggisráðstefnunni í KielÞorgerður Katrín átti einnig tvíhliða fund með Johanni Wadephul, utanríkisráðherra Þýskalands.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, sótti í dag öryggisráðstefnuna í Kiel í Þýskalandi og flutti þaropnunarávarpfyrir pallborðsumræður um öryggismál á norðurslóðum. Öryggisumhverfi Evrópu og hvernig álfan getur tekið aukna ábyrgð á eigin vörnum á óvissutímumvar í brennidepli á ráðstefnunni, með áherslu á öryggismál á Eystrasaltinu, Norður-Atlantshafi og norðurslóðum, allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu og fleira. Fyrr í dag átti Þorgerður Katrín tvíhliða fund með Johann Wadephul, utanríkisráðherra Þýskalands. Á fundi ráðherrana voru Evrópumál og leiðtogafundur NATO í Ankara efst á baugi en þau ræddu einnig stöðu mála í Úkraínu og formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu.

„Það var gott að hitta vin minn, Johann Wadephul, á nýjan leik en samband Íslands og Þýskalands hefur sennilega aldrei verið eins gott og nú,” segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra en þau áttu síðastfund á Íslandi í janúarog jafnframttók hann á móti Þorgerði Katrínu í Berlín í desembersl.

„Sömuleiðis er gríðarlega mikilvægt fyrir hagsmuni Íslands að taka virkan þátt í umræðum eins og þeim, sem fram fóru hér á öryggisráðstefnunni í Kiel, þegar fjallað er um málefni sem varða okkur og okkar nærsvæði. Bæði hér í Kiel sem og á varnarmálaráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins, sem ég sótti í Brussel í gær, má greina hversu mikil gerjun er í öryggis- og varnarmálum í Evrópu og þó að það megi fagna því að aukinn áhugi sé á norðurslóðum þá kemur hann auðvitað ekki alfarið til af góðu. Stærra samhengi hlutanna, þar á meðal ólöglegt innrásarstríð Rússa í Úkraínu, þarf að hafa í huga einnig en í öllu falli er mikilvægt fyrir okkur að taka umræðu um þessi mál, til að geta haft áhrif á þróun þeirra með hagsmuni Íslands að leiðarljósi.“