19 June 2026Skýrsla ráðherra um framkvæmd lýðheilsustefnuAlma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi skýrslu sína um framkvæmd lýðheilsustefnu til næstu fimm ára. Lýðheilsustefna til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi árið 2021. Í skýrslu ráðherra eru sett fram forgangsverkefni næstu fimm ára og fjallað um stöðu verkefna sem er lokið eða komin á veg. Forgangsröðun aðgerða er endurmetin árlega í samræmi við fjárlög Alþingis.
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi skýrslu sína um framkvæmd lýðheilsustefnu til næstu fimm ára. Lýðheilsustefna til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi árið 2021. Í skýrslu ráðherra eru sett fram forgangsverkefni næstu fimm ára og fjallað um stöðu verkefna sem er lokið eða komin á veg. Forgangsröðun aðgerða er endurmetin árlega í samræmi við fjárlög Alþingis.
Meginmarkmið aðgerðaáætlunar lýðheilsustefnu felast í því að auka velsæld, vinna gegn skaðlegum lífsstíls- og umhverfisþáttum og draga úr félagslegum ójöfnuði í heilsu og vinna þannig að góðri heilsu allra landsmanna.