19 June 2026Frumvörp um háskóla og fjölmiðla samþykktAlþingi samþykkti í dag tvö frumvörp Loga Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Alþingi samþykkti í dag tvö frumvörp Loga Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Annars vegar er um að ræðabreytingu á lögum um háskólaog hins vegarbreytingu á lögum um fjölmiðla.
„Það er sérstaklega ánægjulegt að Alþingi hafi samþykkt frumvörpin tvö á þessum þingvetri og ég vil þakka alþingismönnum fyrir góða vinnu á undanförnum vikum. Segja má að bæði frumvörpin muni stuðla að upplýstara samfélagi enda eiga þau það sameiginlegt að styrkja tvær stofnanir sem eru fremstar á því sviði: háskólana og fjölmiðlana,“ segir Logi Einarsson ráðherra.
Með samþykkt Alþingis verður opinberum háskólum landsins nú heimilt að innheimta skólagjöld af nemendum utan Evrópska efnahagssvæðisins, að undanskildum Færeyjum og Grænlandi. Einkareknir háskólar hafa til þessa haft slíka heimild og hefur þessi aðstöðumunur skekkt samkeppnisstöðu opinberu háskólanna gagnvart einkareknum háskólum hérlendis og einnig gagnvart erlendum háskólum.
Í alþjóðlegum samanburði sker Ísland sig úr sem síðasta norræna ríkið sem hefur ekki tekið upp innheimtu skólagjalda af nemendum með ríkisfang utan EES. Í skýrslu OECD um íslenskt efnahagslíf frá árinu 2023 voru íslensk stjórnvöld hvött til þess að taka upp skólagjöld fyrir nemendur utan EES í samræmi við það sem gert er annars staðar á Norðurlöndum.
Þrátt fyrir þessa breytingu verður ráðherra og opinberum háskólum heimilt að fella niður skólagjöld og undanskilja nemendur einstakra námsbrauta frá skólagjöldum.
Þá samþykkti Alþingi einnig breytingar á lögum um fjölmiðla en frumvarpið var liður íaðgerðaáætlun stjórnvalda um fjölmiðla sem var kynnt í desember. Áætlunin var unnin eftir ítarlegt samráð við fjölmiðla landsins, Blaðamannafélag Íslands, auglýsendur og aðra hagaðila.
Stærsta breytingin með nýju lögunum er að stuðningur við einkarekna fjölmiðla, í formi endurgreiðslu á ritstjórnarkostnaði, er framlengdur um fimm ár. Með því er komið til móts við ákall fjölmiðla um aukinn fyrirsjáanleika í þessum efnum. Með frumvarpinu er jafnframt kynntur til sögunnar viðbótarstuðningur við fjölmiðla sem uppfylla sértæk skilyrði; t.a.m. um fjölda fréttamanna, viðbragðsgetu, kosningaumfjöllun o.s.frv.
Áfram er unnið að öðrum þáttum aðgerðaáætlunarinnar í ráðuneytinu. Þannig er fyrirhugað að leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið í haust auk þess sem endurskoðun á lögum um fjölmiðla hefur verið boðuð - m.a. með það fyrir augum að skerpa lagalegu skilgreiningu á því hvað telst vera fjölmiðill.
Fyrr í mánuðinumsamþykkti Alþingi að auki tvö frumvörp ráðherraum breytingu á lögum um opinbera háskóla og um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun.