Speech
Kristrún Frostadóttir  ·  2026-06-30 00:00

19 June 2026Allt eftirlit með matvælum á einn staðAlþingi samþykkti í dag, 19. júní 2026, frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um nýja Stofnun atvinnuveganna. [SH1.1]Lögin munu taka gildi 1. janúar 2027 og tekur stofnunin þá til starfa.

Alþingi samþykkti í dag, 19. júní 2026, frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um nýja Stofnun atvinnuveganna. Lögin munu taka gildi 1. janúar 2027 og tekur stofnunin þá til starfa.

Með lögum um Stofnun atvinnuveganna verður til ný og öflug ríkisstofnun sem mun sinna þeim verkefnum sem áður voru hjá Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, auk þess sem þau verkefni sem heilbrigðiseftirlitssvæðin hafa sinnt og snúa að eftirliti með matvælum færast frá sveitarfélögunum til hinnar nýju stofnunar. Allt eftirlit með matvælum mun því vera undir einni og sömu stofnun.

Núverandi starfsstöðvar bæði þeirra sem starfa hjá sveitarfélögunum við eftirlit með matvælum og þeirra sem starfa hjá MAST, Fiskistofu og Verðlagsstofu eru á svipuðum stöðum um land allt, áhersla er lögð á það innan nýrrar stofnunar að halda í þá staðbundnu þekkingu sem þegar er til staðar. Þá er kveðið á um það í lögunum að Stofnun atvinnuveganna skuli hafa starfsfólk staðsett á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi.

„Með þessari nýju stofnun skapast tækifæri til að efla enn frekar starfsstöðvar sem eftirsóknarverðan vinnustað með öfluga fagþekkingu. Þannig verður til öflugt þekkingarsamfélag hjá stofnuninni með fjölbreyttum tækifærum til þróunar í starfi,“ segir Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra.

Stöður forstjóra Matvælastofnunar, Fiskistofustjóra, forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs og embætti yfirdýralæknis verða lögð niður 1. janúar 2027. Að auki verða öll störf hjá MAST, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs lögð niður sama dag en starfsfólk þessara stofnana á forgangsrétt til starfa hjá Stofnun atvinnuveganna og verða störfin þar af leiðandi ekki auglýst.

Þá verða til 20 stöðugildi hjá Stofnun atvinnuveganna til að sinna þeim verkefnum sem færast til stofnunarinnar frá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaganna. Starfsfólk heilbrigðisnefnda sveitarfélaganna, sem unnið hefur við eftirlit með matvælum, á forgangsrétt til þessara stöðugilda.

Embætti forstjóra Stofnunar atvinnuveganna verður auglýst á næstu dögum og er lagt upp með að hann taki til starfa í haust.

„Það eru virkilega spennandi tímar fram undan við að koma nýrri stofnun á laggirnar. Ég er sannfærð um að hér sé að verða til öflug stofnun með sterkt faglegt bakland og fjölbreytt tækifæri fyrir starfsfólk,“ segir atvinnuvegaráðherra.