19 June 2026Forsamráð hafið um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggiInnviðaráðuneytið hefur hafið forsamráð um efnistök væntanlegrar grænbókar um fjarskipti og netöryggi í samráðsgátt stjórnvalda.
Innviðaráðuneytið hefur hafið forsamráð um efnistök væntanlegrar grænbókar um fjarskipti og netöryggi ísamráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið er að kalla eftir sjónarmiðum almennings, fyrirtækja, sveitarfélaga, opinberra aðila, fræðasamfélags og annarra hagsmunaaðila áður en drög að grænbók verða unnin. Frestur til að skila umsögnum og ábendingum í samráðsgátt er til og með 21. ágúst nk.
Grænbókinni verður ætlað að draga fram stöðu mála, helstu áskoranir, tækifæri og mögulega valkosti til næstu ára. Hún verður grundvöllur að stefnumótun stjórnvalda á sviði fjarskipta og netöryggis. Til skoðunar er hvort mótuð verði ein samþætt stefna og aðgerðaáætlun fyrir bæði fjarskipti og netöryggi eða tvær aðskildar en samhæfðar stefnur. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hyggst mæla fyrir nýrri stefnu eða stefnum á þessu sviði í ársbyrjun 2027.
„Ísland hefur náð miklum árangri í uppbyggingu fjarskiptainnviða. Ljósleiðaravæðingu til heimila og fyrirtækja lýkur brátt og háhraðafarnet nær til sífellt stærri hluta landsins. Útbreiðsla og hraði duga þó skammt ef grunngerðin er ekki nægilega örugg, traust og áfallaþolin þegar á reynir. Þar liggur okkar næsta stóra verkefni.. Við viljum hefja samtalið fyrr en venja er. Málaflokkurinn er það mikilvægur og hraðbreytilegur að mikilvægt er frá upphafi að tryggja að grænbók með stöðumati málaflokkanna byggist á breiðum grunni þess sem samfélagið telur mikilvægast,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.
Fjarskipti og netöryggi eru sífellt nátengdari. Fjarskiptainnviðir eru forsenda stafrænnar þjónustu, atvinnustarfsemi, byggðaþróunar, neyðarsamskipta og daglegs lífs. Á sama tíma eru netöryggi, viðnámsþróttur og traust stafrænna kerfa lykilforsendur þess að samfélagslega mikilvæg þjónusta geti starfað með öruggum hætti.
Í samráðinu er m.a. óskað eftir sjónarmiðum um áfallaþol og öryggi fjarskiptainnviða, aðgengi að öflugum fjarskiptum um land allt, farnet og tíðnimál, sæstrengi og alþjóðlegar tengingar, netöryggi mikilvægra innviða, NIS2-regluverkið, fjarskiptasvik og netglæpi, rafræna auðkenningu og traustþjónustu, samkeppni og fjárfestingu, mannauð, nýsköpun og stafræna samkeppnishæfni Íslands.
Að loknu samráði verður unnið úr innsendum umsögnum og ábendingum og þær nýttar við gerð grænbókar um fjarskipti og netöryggi. Drög að grænbók verða einnig lögð í samráð áður en eiginleg stefna og aðgerðaáætlun verða mótaðar.