Speech
Kristrún Frostadóttir  ·  2026-06-30 00:00

22 June 2026Breytingar á lögum um sjúkratryggingar 1. ágústSamþykkt hefur verið á Alþingi frumvarp heilbrigðisráðherra um ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar. Markmið breytinganna er meðal annars að styrkja hlutverk Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) sem kaupanda heilbrigðisþjónustu, bæta eftirlit stofnunarinnar og stuðla að skilvirkari nýtingu fjármuna í heilbrigðiskerfinu. Einnig er vakin athygli á mikilvægum breytingum sem varða sjúkratryggða.

Samþykkt hefur verið á Alþingi frumvarp heilbrigðisráðherra um ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar. Markmið breytinganna er meðal annars að styrkja hlutverk Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) sem kaupanda heilbrigðisþjónustu, bæta eftirlit stofnunarinnar og stuðla að skilvirkari nýtingu fjármuna í heilbrigðiskerfinu. Einnig er vakin athygli á mikilvægum breytingum sem varða sjúkratryggða.

Skýrt er frekar ákvæði laganna þess efnis að við ákvarðanir sjúkratryggingastofnunarinnar skuli byggt á gagnreyndri þekkingu á sviði heilbrigðisþjónustu og faglegu og hagrænu mati í samræmi við alþjóðlega viðurkenndar aðferðir. Geta stofnunarinnar til að kostnaðargreina heilbrigðisþjónustu er styrkt með ríkari heimildum til aðgangs að upplýsingum um raunkostnað þeirrar þjónustu sem samið er um. Skerpt er á þeirri meginreglu að sjúkratryggingastofnunin taki þátt í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu á grundvelli samninga. Lagabreytingarnar eru m.a. gerðar vegna ábendinga Ríkisendurskoðunar í nýlegri skýrslu um SÍ sem samnings- og eftirlitsaðila. Þar var bent á þörf fyrir aukið gagnsæi, betri upplýsingagjöf, markvissara eftirlit og öflugri stjórntæki við framkvæmd sjúkratrygginga og ráðstöfun opinbers fjár.

Aðrar helstu breytingar varðandi SÍ:

Sjúkratryggingar fá auknar heimildir til gagnaöflunar og eftirlits til að tryggja rétta framkvæmd og greiðslur.

Ný ákvæði styrkja heimildir stofnunarinnar til kostnaðargreiningar og eftirlits með samningum og þjónustutengdri fjármögnun.