Speech
Kristrún Frostadóttir  ·  2026-06-30 00:00

22 June 2026Úrskurður nr. 4/2026 - kæra A vegna sveitarstjórnarkosninga í Eyja- og Miklaholtshreppi.Úrskurður nr. 4/2026 - kæra A vegna sveitarstjórnarkosninga í Eyja- og Miklaholtshreppi.

Ár 2026, 19. júní, kom úrskurðarnefnd kosningamála saman til að úrskurða um kæru A vegna sveitarstjórnarkosninga í Eyja- og Miklaholtshreppi hinn 16. maí 2026 og kveðinn upp svohljóðandi

Mál þetta úrskurða Berglind Svavarsdóttir, Anna Tryggvadóttir og Unnar Steinn Bjarndal.

Með tölvupósti þann 31. maí 2026 barst kæra frá A þar sem þess er krafist að úrskurðarnefnd kosningamála taki ákveðin atriði er varða framkvæmd sveitarstjórnarkosninga í Eyja- og Miklaholtshreppi þann 16. maí 2026 til umfjöllunar.

Kæruheimild er í 6. tl. 2. mgr. 22. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og kærufrestur sjö dagar skv. 1. mgr. 128. gr. kosningalaga.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að kæra hans verði tekin til meðferðar þótt hún hafi borist utan kærufrests og að kosningarnar verði úrskurðaðar ógildar.

Afstaða yfirkjörstjórnar Eyja- og Miklaholtshrepps barst þann 9. júní 2026.

Kærandi gerir í fyrsta lagi athugasemdir við auglýsingu kosninganiðurstaðna á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem upplýsingar um atkvæðatölur kjörinna varamanna og heildarfjölda greiddra atkvæða hafi vantað. Í öðru lagi vill hann fá úr því skorið hvort hæfisreglur komi í veg fyrir að aðalfulltrúi í sveitarstjórn eða maki hans, sem sækist berlega með virkum hætti eftir endurkjöri í sveitarstjórn, geti tekið sæti í yfirkjörstjórn. Í þriðja lagi telur kærandi að úrskurða þurfi um hvort sambúðarmaka skorti hæfi til að taka þátt í úrskurði yfirkjörstjórnar um endurtalningu sem kann að snúast um röð makans á lista varamanna. Í fjórða lagi gerir kærandi athugasemdir við tilkynningu úrskurðar um að endurtelja ekki atkvæði. Vill hann í því sambandi fá úr því skorið hvort formgalli á tilkynningu valdi því að ákvörðunin sé ógild og hvort skortur á leiðbeiningum um kæruleiðir og misskilningur sem af því stafar hafi áhrif á kærufrest.

Í umsögn yfirkjörstjórnar sveitarfélagsins Eyja- og Miklaholtshrepps er bent á að kæran hafi borist of seint þar sem sjö daga frestur í 1. mgr. 128. gr. kosningalaga hafi verið liðinn þegar kæra barst.

Í 1. mgr. 128. gr. kosningalaga nr. 112/2021 segir að kærur um ólögmæti sveitarstjórnarkosninga, aðrar en refsikærur, skulu sendar úrskurðarnefnd kosningamála innan sjö daga frá því að lýst var úrslitum kosninga.

Af kæru má ráða að kærandi telji að svör yfirkjörstjórnar til hans þann 21. maí 2026, um að atkvæði verði ekki endurtalin, eigi að hafa áhrif á kærufrest. Af því tilefni er bent á að svör við erindi kjósanda með beiðni um endurtalningu atkvæða fela eðli máls samkvæmt ekki í sér tilkynningu um niðurstöðu kosninga. Þá er ekki um að ræða ákvörðun sem er kæranleg til úrskurðarnefndar kosningamála.

Hinn 17. maí 2026 birtist tilkynning á vef Eyja- og Miklaholtshrepps um niðurstöðu sveitarstjórnarkosninga 2026. Þótt kærandi telji að annmarkar hafi verið á tilkynningunni þá fellst úrskurðarnefnd kosningamála ekki á að tilkynningin hafi verið haldin slíkum annmörkum að hún verði talin í andstöðu við 1. mgr. 119. gr. a kosningalaga þar sem segir að yfirkjörstjórn sveitarfélags lýsi úrslitum kosninganna með því að birta á vef sveitarfélagsins upplýsingar um úrslitin og hverjir náðu kosningu sem aðalmenn og hverjir eru varamenn. Upphaf kærufrests var því þann 17. maí 2026 og var kærufrestur liðinn þegar kæran barst þann 31. maí s.á. Þá fellst úrskurðarnefnd kosningamála ekki á að skortur á leiðbeiningum yfirkjörstjórnar vegna beiðni um endurtalningu leiði til þess að afsakanlegt verði talið að kæra hafi ekki borist fyrr. Er því rétt að vísa kærunni frá.

Kæru A vegna sveitarstjórnarkosninga í Eyja- og Miklaholtshreppi er vísað frá.

Anna Tryggvadóttir                                                                            Unnar Steinn Bjarndal