22 June 2026Baldur siglir áfram til Eyja og Særún til FlateyjarBaldur áfram gegna hlutverki sínu sem varaskip til Eyja vegna tafa á viðgerð Herjólfs.
Vegna tafa við viðgerð á annarri vél Herjólfs mun ferjan Baldur áfram gegna hlutverki sínu sem varaskip Herjólfs og sigla til og frá Vestmannaeyjum til að tryggja örugga og órofna þjónustu. Tafir má rekja til seinkunar á afhendingu varahluta til verkstæðis í Hollandi. Vegagerðin hefur einnig samið um að báturinn Særún haldi áfram siglingum til Flateyjar til að tryggja þjónustu við íbúa og atvinnulíf á svæðinu.
Við óviðráðanlegar aðstæður líkt og nú, þegar önnur vél Herjólfs bilar, reyndist nauðsynlegt að kalla út varaskip. Þegar Herjólfur siglir á einni vél getur skipið illa siglt til Landeyjahafnar ef ölduhæð fer yfir 2 m og/eða ef vindur er yfir 12 m/s. Það er ekki óalgengt á þessum árstíma og því má lítið út af bregða að siglingaáætlun Herjólfs raskist.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra átti fyrir helgi fund með bæjarstjórum í sveitarfélögum við Breiðafjörð til að fara yfir stöðu mála.
„Undanfarnar vikur hafa skapast erfiðar og ófyrirséðar aðstæður í ferjusiglingum til Vestmannaeyja sem hafa óhjákvæmilega haft áhrif á ferjusiglingar á Breiðafirði. Ég hef fullan skilning á þeim erfiðleikum sem fjarvera Baldurs hefur í för með sér fyrir atvinnulíf, flutninga og daglegt líf á svæðinu, ekki síst í Flatey.
Samkvæmt samningum er Baldur skilgreindur sem varaskip fyrir Herjólf og sú ákvörðun að kalla hann til Vestmannaeyja byggir á öryggissjónarmiðum. Með aðeins eina vél starfhæfa þolir Herjólfur litla ölduhæð og vind áður en loka þarf fyrir siglingar í Landeyjahöfn. Slíkar aðstæður eru ekki óalgengar á þessum árstíma og þá skapast hætta á samgöngurofi við eyjasamfélag. Það er mikilvægt að taka af allan vafa um að þessi tímabundna varúðarráðstöfun er ekki gerð til að mæta aukinni farþegaeftirspurn yfir sumartíma, heldur til að tryggja samgönguöryggi.
Það sem mestu skiptir nú er að lágmarka líkur á að staða sem þessi komi upp aftur eða vari jafn lengi. Til að mynda þarf að tryggja að rekstraraðilar Herjólfs hafi yfir að ráða sérsmíðuðum varamótorum.. Jafnframt hefjum við á næstunni vinnu við heildstæða ferjuáætlun til framtíðar þar sem meðal annars verður litið til endurnýjunar flotans og samnýtingar varaskipa. Þar verður kallað eftir virkri þátttöku sveitarfélaga við Breiðafjörð til að tryggja framtíðarskipulag, ferjusiglinga,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.
Særún hefur flutt farþega, vörur, neysluvatn, fiskikör og annan farm til Flateyjar. Þá hefur búnaði verið komið fyrir í eynni sem gerir kleift að sinna vöruflutningum til og frá Flatey.
Særún hefur leyfi til að flytja 115 farþega. Þótt Særún sinni almennri þjónustu takmarkar burðargetan umfang flutninganna miðað við Baldur. Skipið getur til að mynda ekki flutt bifreiðar milli Stykkishólms og Brjánslækjar, sem hefur óhjákvæmileg áhrif á ferðafólk á bílum. Eftir sem áður er landleið í boði, ólíkt þeim aðstæðum sem eru til staðar í tengingum við Vestmannaeyjar. Opnun Þorskafjarðarbrúar og nýs vegar um Teigsskóg hefur stytt leiðir á sunnanverðum Vestfjörðum og bætt akstursskilyrði og auðveldað fólki að fara landleiðina milli byggða á vesturhluta landsins.