Nýverið lauk úthlutunarferli tollkvóta á landbúnaðarvörum sem taka allir gildi 1. janúar nk. og gilda ýmist í 6 eða 12 mánuði. Í nær öllum tilvikum var umfram eftirspurn eftir tollkvótum og var þeim því úthlutað með útboði. Um er að ræða tollkvóta sem veita heimild til innflutnings á kjöti, unnum kjötvörum, ostum og plöntum án tolla eða á lægri tollum en tollskrá segir til um. Um niðurstöður hverrar úthlutunar má lesa að neðan. Mánudaginn 15. desember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollk…
Kristrún Frostadóttir
Leader of Iceland
Recent quotes
See all →Ísland er nú fullgildur aðili að Alþjóðastofnun um leiðarmerki í siglingum (e. International Organization for Marine Aids to Navigation). Ritað var undir stofnsáttmála nýju alþjóðastofnunarinnar árið 2021. Fullgildingarskjöl voru afhent franska utanríkisráðuneytinu í september á þessu ári en samningurinn tók gildi gagnvart Íslandi 9. október. Í samningnum segir að tilgangur stofnunarinnar sé að leiða saman ríkisstjórnir og stofnanir og fyrirtæki sem koma að reglusetningu, veitingu, viðhaldi eða…
Alþingi hefur samþykkt frumvarp Ingu Sæland, félag og húsnæðismálaráðherra sem felur í sér að öryrkjum verður tryggð ævilöng aldursviðbót og að almennt frítekjumark ellilífeyris hækki. „Hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyrisþega og ævilöng aldursviðbót eru breytingar í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem boðar aðgerðir til að uppræta fátækt og lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega. Með frumvarpinu eru stigin mikilvæg skref í átt að réttlátara samfélagi…
Alþingi hefur samþykkt frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra um hlutdeildarlán en með þeim er stuðningur aukinn við fyrstu kaupendur við að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Hlutdeildarláneru vaxta- og afborgunarlaus lán frá ríkinu fyrir hluta af verði fyrstu fasteignar. Með þeim þarf fólk lægra fasteignalán og lægri útborgun. Þeir sem eru að koma inn á húsnæðismarkaðinn þurfa þá ekki að reiða sig á stuðning foreldra eða annarra og eiga auðveldara með að standast greiðslumat og lá…
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til breytinga á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun um vindorku og verndarflokk. Frumvarpinu er ætlað að tryggja vernd náttúruverðmæta og landslagsheilda, lögbinda forræði nærsamfélags þegar kemur að vindorkunýtingu en jafnframt að liðka fyrir uppbyggingu sem fellur að byggðasjónarmiðum og styður við raforkuöryggi og stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Lagt er til að vindork…
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skipað Unnþór Jónsson í embætti varaformanns úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá og með 1. janúar. Unnþór hefur um nokkurt skeið gegnt störfum bæði á málefnasviði nefndarinnar, sem og við nefndar- og úrskurðarstörf innan Stjórnarráðsins. Unnþór hefur á árinu 2025 starfað sem settur varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og var einnig settur varaformaður nefndarinnar árið 2022. Hann hefur starfað sem lögfræðingur hjá úrs…
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, sem einnig fer með málefni mennta- og barnamálaráðuneytisins, er farinn í tímabundið leyfi vegna feðraorlofs. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mun leysa Eyjólf af á meðan leyfinu stendur og fara með málefni innviðaráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis. Eyjólfur mun gera hlé á feðraorlofi sínu upp úr miðjum janúar til að mæla fyrir nýrri samgönguáætlun.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 16. október 2025í máli nr. 25/2025:Stoð ehf.gegnFjársýslu ríkisins,Sjúkratrygginga Íslands ogStoðtækni ehf. LykilorðSjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt. ÚtdrátturKærunefnd útboðsmála féllst á kröfu varnaraðila um að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 13. júní 2025 kærði Stoð ehf. (hér eftir „kærandi“) ákvörðun Fjársýslu ríkis…
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 16. október 2025í máli nr. 26/2025:Embla Medical hf. ogForMotion ehf.gegnFjársýslu ríkisins,Sjúkratryggingum Íslands,Fastus ehf.,Stoð ehf.,Stoðtækni ehf. ogStuðlabergi ehf. LykilorðSjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt. ÚtdrátturKærunefnd útboðsmála féllst á kröfu varnaraðila um að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 13. júní 20…
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 27. október 2025í máli nr. 44/2025:Rými – Ofnasmiðjan ehf.gegnLandspítalanum ogKone ehf. LykilorðKrafa um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar. Bindandi samningur. ÚtdrátturÍ ákvörðun kærunefndar útboðsmála var lagt til grundvallar að bindandi samningur væri til staðar milli varnaraðila og K. Kærunefnd útboðsmála vísaði því frá kröfum varnaraðila og K, um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt, og hafnaði kröfu R um að samningsgerð í útboðinu…
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 6. nóvember 2025í máli nr. 43/2025:Ísold ehf.gegnFjársýslu ríkisins,Þjóðskjalasafn Íslands ogRými – Ofnasmiðjunni ehf. LykilorðSjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt. ÚtdrátturFallist var á kröfu F og Þ um að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016. Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 19. september 2025 kærði Ísold ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Fjársýslu ríkisins fyrir hönd Þjóðskjalas…
Úrskurður kærunefndar útboðsmála 10. nóvember 2025í máli nr. 27/2025:Borgarverk ehf.gegnFramkvæmdasýslunni – RíkiseignumVesturbyggð ogSuðurverki hf. LykilorðSkilmáli. Tilboðsgögn. Ákvörðun felld úr gildi. Málskostnaður. ÚtdrátturÍ málinu krafðist B þess að felldar yrðu úr gildi ákvarðanir F og V um að hafna tilboði hans og velja tilboð S í útboði um ofanflóðavarnir í Bíldudal. Laut ágreiningur einkum að því hvort B hefði uppfyllt skilyrði útboðsgagna um að lágmarks veltufjárhlutfall bjóðanda s…
Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár.Úthlutunarnefnd skipa Anna Mjöll Karlsdóttir lögfræðingur (formaður), samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar Íslands, Gunnar Þór Tómasson löggiltur endurskoðandi, samkvæmt tilnefningu Ríkisendurskoðunar og Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Háskóla Íslands, samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra.Alls bá…
Úrskurður kærunefndar útboðsmála 10. nóvember 2025í máli nr. 16/2025:Exton ehf.gegnsveitarfélaginu Hornafirði ogAtendi ehf. LykilorðKærufrestur. Sérfræðingur. Útilokunarástæður. Tilboðsgögn. Ákvörðun um val tilboðs felld úr gildi. ÚtdrátturÁgreiningur málsins laut að útboði varnaraðila, H, varðandi kaup á nýjum hljóð-, ljósa- og myndkerfum fyrir Sindrabæ á Hornafirði. Á meðal ágreiningsefna málsins var hvort H hefði borið að útiloka A frá þátttöku í útboðinu á grundvelli 4. mgr. 68. gr. laga n…
Ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins var mynduð á þessum degi fyrir réttu ári. Það var gleðidagur, eins og alltaf þegar sól fer hækkandi. Í þetta sinn eftir sögulegar kosningar þar sem þjóðin valdi nýtt upphaf. Það hefur verið heiður lífs míns að vinna í þjónustu þjóðar sem forsætisráðherra. Ég er þakklát fyrir traustið og stuðninginn á hverjum einasta degi. Og ég gleðst yfir árangri og verkgleði samráðherra minna og stjórnarráðsins alls á liðnu ári. Við gerum okkar besta …
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 10. nóvember 2025í máli nr. 29/2025:Alefli ehf.gegnFélagsbústöðum ogMannverki ehf. LykilorðSjálfkrafa stöðvun samningsgerðar. ÚtdrátturKærunefnd útboðsmála hafnaði kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 30. júní 2025 kærði Alefli ehf. ákvörðun Félagsbústaða (hér eftir „varnaraðili“) að velja tilboð Mannverk…
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur lagt fram til kynningar og umsagnar í samráðsgátt stjórnvaldadrög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um lagareldiásamtdrögum að frumvarpi um breytingar á lögum um lax- og silungsveiði. Markmið frumvarpsins sem nú er kynnt varðandi lagareldi er að styrkja lagaramma atvinnugreinarinnar og sporna gegn neikvæðum umhverfisáhrifum með því að innleiða hvata og þannig skapa traustari grundvöll fyrir verðmætasköpun og sjálfbæran vöxt greinarinnar til fr…
Samkvæmt lögum um tekjuskatt hækka persónuafsláttur og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga í upphafi hvers árs sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði að viðbættri hækkun vegna framleiðnivaxtar. Miðað er við 1% árlega aukningu framleiðni og er það mat tekið til endurskoðunar á 5 ára fresti, næst fyrir tekjuárið 2027. Hækkun vísitölu neysluverðs liggur nú fyrir og nemur hún 4,5% á 12 mánaða tímabili. Heildarhækkun viðmiðunarfjárhæða verður því 5,5%. Tekjuskattsprósentan er ó…
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um stjórn vatnamála. Frumvarpsdrögin voru unnin af verkefnahópi sem skipaður var af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Markmið frumvarpsins er m.a. að kveða á um að vernda vatn og vistkerfi þess þannig að vatn njóti heildstæðrar verndar. Verndinni er ætlað að koma í veg fyrir hnignun á ástandi vatnavistkerfa og jafnframt að vernda og bæta ástand þeirra. Jafnfr…
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 43/1999 um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðará Íslandi var samþykkt á Alþingi 17.desember 2025. Lögin öðlast þegar gildi en ákvæðin koma til framkvæmda 1. janúar 2026.Með samþykkt frumvarpsins hafa tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar verið framlengdar til ársins 2028. Með lagabreytingunni er því tryggt að framleiðsla kvikmynda- og sjónvarpsefnis geti áfram sótt um 25% eða 35% endurgreiðslu af framleiðslukostnaði sem til fellur v…
Earlier quotes are Pro-only
Free access covers the last 7 days. Unlock the full archive — back to 2026-05-12 — with Pro.
Sign up for Pro